31.1.03

Ég er búin að vera að berjast við að koma borða með mynda af mér á, sem við bjuggum til hjá honum Birni, út á tæknisíðuna mína, en án árangurs. En loksins tókst það núna, þannig að ég get farið að sofa og vonandi dreymir mig eitthvað annað en heimasíðu.Ég held að íslenskur stafur sem slæddist þarna með þegar ég vistaði borðann hafi orsakað þetta.
Við Þórunn keyptum okkur handbók um Fireworks forritið þannig að það verður ekki setið auðum höndum um helgina. Ég segi nú bara svona. Ég ætla að reyna að fara á morgun í KHÍ og vera frá 10 til 14 ef það verður ekki vitlaust veður.

Er búin að búa til vefrallý um Vísindavef Háskóla Íslands. Þetta er skemmtilegur vefur, en er svolítið snúinn að vafra um, því það eru svo margir mismunandi efnisflokkar sem spurt er úr. Ég tók því á það ráð að velja bara einn flokk í þetta sinn. Ég hef hugsað mér þetta vefrallý fyrir krakka í fimmta bekk og upp í sjöunda. Það mætti búa til vefrallý fyrir eldra stigið og taka þá spurningar úr öllum flokkum. Það má vinna þetta rallý einstaklingslega eða tveir og tveir saman.

30.1.03

Nú er ég loksins búin að koma heimasíðunni minni út á Netið. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Það myndaðist einhvers konar stífla þegar ég ætlaði að setja nýja vefinn yfir þann gamla. Gamli vefurinn spýttist inn á svæðið, þar sem nýi vefurinn beið í ofvæni eftir því að komast út á Netið og varnaði honum útgöngu. Eftir margra tíma vinnu þá gekk þetta. Guði sé lof að ég var ein heima með Guðnýju minni, sem lét lítið fyrir sér fara, þannig að ég gat einbeitt mér að tæknilegum vandamálum. Ef einhver spyrði mig í hvaða vandræðum ég átti, gæti ég ekki svara því, enda orðin ansi framlág.

27.1.03

Tæknisaga

Reynsluleysið mitt og reynsla af tækninni.

Tækniraunir.
Ég hafði ákaflega litla reynslu af tólum og tækjum. Komst upp með að láta aðra sjá um tæknimálin fyrir mig, þó ekki væri annað en að kveikja á myndbandstækinu, sem vafðist stundum fyrir mér. Þetta er sjálfsagt angi af prinsessukomplexum og stundum finn ég enn fyrir bauninni. Þetta átti ekki bara við á heimavígstöðum heldur teygði þetta anga sína út í skólann. Maður var hlaupandi á skólagöngunum í von um að finna einhvern karlpening (þvílíkt og annað eins! – ég dauðskammast mín) sem gæti komið þessu eða hinu tækninu í gang. Ég hafði vanmáttarkennd gagnvart tölvum, en langði að geta nýtt mér þetta tæki fyrir mig prívat og í kennslunni. Til að gera langa sögu stutta þá gat ég ekki lengur unað við þetta ástand, ég varð að vakna upp af þyrnirósarsvefninum og snúa vörn í sókn.

Tölvunám.
Aldamótaárið lagðist vel í mig og ákvað ég að sækja um launað námsleyfi og nota það til að læra á tölvu. Ég fékk leyfið og byrjaði í tölvukennaranámi við Rafiðnaðarskólann í Reykjavík. Þar lærði ég á Office forritin og sat í tímum fjóra morgna vikunnar veturinn 2001-2002. Þetta var mikil vinna og tók svo sannarlega á hálfrar aldar gamla konu. Þetta var sérlega skemmtilegur vetur og lærdómríkur. Það er ekki of sögum sagt að nýr heimur hafi opnast fyrir mér. Mjög spennandi heimur. Ég fékk einhvers konar frelsistilfinningu, fannst ég vera laus úr álögum, fór að treysta á sjálfa mig og pældi í gegnum handbækur um hin og þessi forrit enda var það liður í náminu. Skólasystkinin mín voru betri en enginn; allt kennarar með mismikla tölvureynslu og kunnáttu að baki. Þarna fór fram samvirkt nám og jafningjafræðsla.

Tæknieign.
Þetta haust fór ég og keypti fyrstu tölvuna mín. Reyndar hafði ég tveimur árum fyrr keypt gamla tölvu sem dróg úr mér alla löngun til að setjast niður og hefja uppgötvunarnám, því tölvan var mjög dyndótt og ekki hægt að koma neinu tauti við hana; karlmaður dugði ekki einu sinni til.
Það urðu sem sagt straumhvörf í lífi mínu þegar ég eignaðist nýja tölvu og lærði á hana fyrir hálfu öðru ári. Þegar mér stóð til boða tölvukennsla í Álftamýrarskóla stökk ég á tilboðið eftir nokkra umhugsun, því ég vissi að maður lærir mest á því að kenna öðrum. Það eru fljót upptalin tækin hér á heimilun fyrir utan heimilistækin. Það er náttúrlega tölvan og prentari. Við erum með ISDN tengingu. Við eigum myndavélar og höfum aðgagn að stafrænum myndavélum í vinnunni. Hver fjölskyldumeðlimur á GSM síma. Ég fékk minn fyrir tveimur árum en mér fannst ég ekkert þurfa á honum að halda en hann hefur komið í góðar þarfir á ferðalögum mínum milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur.

Tölvunotkun.
Heimilsifólkið notar tölvuna en það verður að segjast eins og er að ég einoka hana nokkuð, enda í fjarnámi við framhaldsdeild Kennarháskólans í tölvu- og upplýsingatækni! Tölvan er notuð af heimilsifólkinu til að vinna í ritvinnslu, fara á Interneti til að leita sér upplýsingar um ýmis málefni, skipuleggja ferðalög innan- og utanlands, senda tölvupóst og síðast en ekki síst til athuga stöðuna á bankareikningnum. Fyrsta skipti sem ég keypti eitthvað í gegnum Netið var að kaupa burt auglýsinguna af dagbókinni minni á blogspot.com í upphafi námskeiðsins: “Nám og kennsla á Netinu”. Ég hef hlaðið niður fríum forritum af Netinu á tölvuna mín og í skólanum. Tölvupóstinn notum við mikið og ekki síst til að hafa samband við vini og kunningja innan- og utanlands. Samskipti við “skiptinema sytur” mína sem legið höfðu niðri í nokkur ár komust aftur á í gegnum tölvupóst.
Fyrstu vefsíðuna gerði ég vorið 2002 í Rafiðnaðarskólanum.

Fyrstu kynnin.
Fyrstu kynni mín af tölvum hafa sennilega verið þegar ég byrjaði að kenna í Hvammshlíðarskólanum á Akureyri árið 1990 (til1995) sem er sérskóli fyrir þroskahefta. Þar voru til þrjár tölvur sem notaðar voru fyrir kennsluforrit sem geymd voru á stórum disklingum sem líktust einna helst mynbandsspólum. Ein tölva var á skrifstofunni. Ég fór á fyrirlestur hjá Pétri Þorsteinssyni á Kópaskeri og fræddist um Íslenska menntanetið og heyrði minnst á Láru Stefánsdóttur. Við vorum nokkrir kennarar í Hvammshlíðarskóla í nokkurs konar fjarnámi saman og sátum í kringum eina tölvu og vorum að læra að fara á Internetið og leita af bókatitlum á bókasafni Háskóla Íslands og senda tölvupóst. Ég man bara að þetta var þvílíkt torf. Í minningunni finnst mér ég hafa verið meiri áhorfandi en þátttakandi enda gátum lítið notað þetta grúsk okkar þar sem enginn okkar átti tölvu til æfa sig á.

Ég gleðst yfir að nú skuli ég vera orðin virkur þátttakandi þó seint sé í upplýsingasamfélaginu, sem mér finnst afar spennandi og skemmtilegt. Betra er seint aldrei.

Framtíðarsýn- tæknilegar aðstæður mínar árið 2013.

Á heimilinu.

Tæknilegar aðstæður mínar eftir áratug verða þannig að ég verð komin með í lófann tæki sem sameinar síma og tölvu og með beinn tengingu við mórðutölvu og Internetið, þannig að ég get haft samband við umheiminn hvar sem ég er stödd og aflað mér upplýsinga og náð sambandi við hvern sem er, hvar sem er. Á heimilið verður komin fyrirferðarlítil fartölva eða tölvur og hraðvirkur prentari, starfæn myndavél sem hægt er að taka á hreyfimyndir og venjulegar myndir.

Í skólanum.

Í skólanum verður hver nemandi með sína eigin tölvu, þar sem hann hefur stundartölfluna sína, dagbók, námsáætlanir og námsefni. Samskipti kennara og nemanda fara að stórum hluta fram í gegnum tölvu. Hver nemandi fær námsefni við sitt hæfi og kennarinn fylgist með vinnu hans og verkefnaskilum í gegnum tölvuna. Í stað þess að kennarinn gangi um gólf til að fylgist með hvernig námið gegnur hjá nemendum og aðstoði þá, situr hann fyrir framan tölvuskjáinn sinn fylgist með framvindu náms þeirra og aðstoðar eftir þörfum í gegnum tölvuna.

Innra eftirlit skólans verður að finna í gagnabanka lófatölvu kennarans þar sem hann getur athugað hvort markmiðum skólanámskráarinnar sé náð, hvort kennsluáætlunin standist. Skólastjórnendur halda utan um innra eftirlitið og geta fylgst með því hvort áætlunum og markmiðum sé framfylgt. Ef afleysingarkennari þarf að koma inn í bekkinn þá á hann að geta áttað sig á, hvar nemendur eru staddir í náminu og hvað er framundan. Verkefnaskil og próf verða öll á rafrænu formi og tölvan sér um að meta árangur nemenda út frá þeim upplýsinum sem þar eru geymdar.

Þrátt fyrir mikla tækniframfarir á síðustu áratugum og næstu, er ég sannfærð um að undratækið tölvan kemur ekki í stað góðs kennara.


24.1.03



Hver er ég? Á síðustu tveimur árum hafa orðið svo miklar breytingar á mínum tækni högum að ég átta mig ekki alveg á þessu. Fyrir tveimur árum kunni ég ekkert á tölvu og svitinn spratt út á mér í hvert sinn sem ég þurfti að setjast við tölvuna. Reyndar var ég komin upp á lag með að senda skeyti. Ég gat notað tölvuna nokkurn veginn hjálparlaust við að skrifa bréf.

Haustið 2001 fékk ég launað orlof og ég er eiginlega alveg viss um að ég fékk það í fyrstu tilraun, af því að ég ætlaði að fara að læra á tölvu og er ég afskaplega þakklát fyrir það. Leið mín lá í Rafiðnaðarskólann í nám sem nefndist; “Ertu kennari og viltu verða tölvukennari”. Ég var kennari og mig langaði að læra á tölvu, en að verða tölvukennari það var nú kannski fullmikið af því góða. Mig langaði að læra á tölvu út frá praktísku sjónarmiði, það stóð mér einfaldlega fyrir þrifum, sem kennara að kunna ekki á þetta tæki.

Námið í skólanum var mjög gagnlegt fyir mig og krefjandi. Það tók svo sannarlega á að læra á öll þessi forrit og taka tölvuna í sátt. Maður var með munnherkju af ákafa, stressi og taugaveiklun. En þetta var líka skemmtilegt og lærdómsríkt ár. Þakklát er ég líka fyrir bekkjarsystkinin mín í skólanum sem voru og eru mér sérstaklega kær, þetta er frábært fólk. Það var happdrættisvinningur að fá að sitja með þessu fólki í tímum í heilan vetur og ég lærði ekki síst af þeim! En þegar ég mætti fyrsta daginn í skólann þá hafði ég einhvern veginn ekki leitt hugann að því að það yrðu fleiri en ég í þessu námi.

Ég er sem sagt Sigga (mamma kallar mig alltaf Sigríði) og er búin að kenna í nokkrum skólum bæði út á landi og í Rykjavík. Ég er hætt að telja árin. Núna er ég að kenna í Álftamýrarskóla í Reykjavík þó ég búi í Þorlákshöfn, en það kemur nú til að því að eitt þessara skólasystkina minna úr Rafiðnaðarskólanum er hún Þórunn mín Trausta. Hún skoraði á mig að koma og kenna á tölvur í Álftamýrarskóla, þar sem hún er deildastjóri og tölvuumsjónarmaður. Ég lét til leiðast enda vissi ég að ég hefði gott og gaman að.

Ég geymi það besta þar til síðast. Ég á fjölskyldu, þó hún sitji nú svolítið á hakanum vegn þessa tæknibrölts eða náms sem ég hef verið í í fyrra og núna, en hún tekur því með stillingu. Maðurinn minn heitir Sigurður Jónsson og ég á þrjár dætur; Steingerði 33, Helgu Jónu 27 og Guðnýju 14 ára. Þrjú barnabörn á ég norður á Húsavík, Sigurður Ágúst 11 ára og tvíburana Ragnhildi og Sigurjón sem eru 6 ára. Ég er heppin að eiga þessa fjölskydu.

Nemanda mínum, sem var að skrifa um sig og sína fannst hún líka heppinn, þegar henni fannst ástæða til að taka það alveg sérstaklega fram að mamma hennar og pabbi væri ekki skilin!

Besta hrós sem ég hef fengið í lengi var þegar einn lítill 11 ára gaur sagði við gangavörðinn í Álftamýrarskóla og horfði á mig fullur aðdáunar: Veistu, að hún er tölvukennari og er amma? ...svo keyrir hún frá Þorlákshöfn á hverjum degi!


21.1.03

Það verður nóg að gera fram til 1. febrúar í náminu, en þá eru verkefnaskil.... obobob. Nú þarf ég að leggja höfuðuð í bleyti og finna vefsíðu sem ég get búið til vefrallý um. Ég hef rekist á orðið bjargir í þessu sambandi en er ekki alveg viss um við hvað er átt og sitt hvað fleira. Nú verð ég að reyna að finna út hvað þetta merkir allt saman, eitthvað punktaði ég hjá mér í staðbundinni lotu.

Við Þórunn pöntuðum far til Akureyrar í dag þann 28. febrúar á UT ráðstefnuna...og ég ætla ekki suður fyrr en 2. mars. Ég ætla að fara til Húsavíkur þegar ráðstefnunni lýkur og hitta Steingerði og fjölskyldu.
Í gær borgaði ég 15 dollara til að losna við auglýsinguna á borðanum hjá mér á "blogginu". Mig langar að fá mér stærra svæði svo ég geti sett myndir inn í dagbókina, mér finnst það svo flott, en það er svo sem ekki víst ég noti það mikið.
Þetta er mynd af Þorlákskirkju, Ráðhúsinu og skólanum í Þorlákshöfn. Ætlunin var að taka bara mynd af kirkjunni, af því það er kirkjukórsæfing í kvöld og ég tók mér frí til að læra betur á bloggið. Þetta var sem sagt liður í að æfa sig í að setja inn mynd, sem urðu þrjár samhangandi myndir..... Ferðamálvefur Ölfuss

Er bara að prófa að setja inn krækjur.
Gagnasafn Morgunblaðsins
Fjalla-Eyvindur
Ferðafélag Íslands - bý e.t.v. vefrallý um þennan vef.

20.1.03

Í gær las ég yfir verkefni frá nemendum frá því í fyrra. Þetta eru allt mjög fín verkefni. Ég fór líka að vafra á vefnum eins og þar stendur og ég sló inn leitarorðið útilegumenn á Google.com. Ég smellti á vefsíðu og þar var þessi leikur sem heitir: Mörkuð borg. Ég hélt áfram að smella á vefsíður og þar fann ég nokkrar um Fjalla-Eyvind.

Nú lágu Danir í því ... Hildi H. Bjarnadóttur hefur þótt þetta sniðugt verkefni eins og mér, því ég rakst á verkefni eftir hana um útilegumenn, sem hún hefur greinilega gert á þessu námskeiði 1999. Mér fannst þetta alveg upplagt verkefni, þar sem ég er komin af Fjalla-Eyvindi í sjötta lið. En hann átti son sem Einar hét og var forfaðir minn. Ég fer ekki frekar út í þá sálma þar sem ég er ekki mjög ættfróð manneskja. En hvað um það hér er vefsíða Hildar.

18.1.03

Þetta er síðasta dagurinn af þremur í staðbundinni lotu hér Kennaraháskólanum á námskeiðin Nám og kennsla á Netinu hjá Salvöru Gissurardóttur. Þetta eru búnir að vera lærdómsríkir dagar. Ég hlakka samt til að fara heim og hvíla mig.