27.1.03

Tæknisaga

Reynsluleysið mitt og reynsla af tækninni.

Tækniraunir.
Ég hafði ákaflega litla reynslu af tólum og tækjum. Komst upp með að láta aðra sjá um tæknimálin fyrir mig, þó ekki væri annað en að kveikja á myndbandstækinu, sem vafðist stundum fyrir mér. Þetta er sjálfsagt angi af prinsessukomplexum og stundum finn ég enn fyrir bauninni. Þetta átti ekki bara við á heimavígstöðum heldur teygði þetta anga sína út í skólann. Maður var hlaupandi á skólagöngunum í von um að finna einhvern karlpening (þvílíkt og annað eins! – ég dauðskammast mín) sem gæti komið þessu eða hinu tækninu í gang. Ég hafði vanmáttarkennd gagnvart tölvum, en langði að geta nýtt mér þetta tæki fyrir mig prívat og í kennslunni. Til að gera langa sögu stutta þá gat ég ekki lengur unað við þetta ástand, ég varð að vakna upp af þyrnirósarsvefninum og snúa vörn í sókn.

Tölvunám.
Aldamótaárið lagðist vel í mig og ákvað ég að sækja um launað námsleyfi og nota það til að læra á tölvu. Ég fékk leyfið og byrjaði í tölvukennaranámi við Rafiðnaðarskólann í Reykjavík. Þar lærði ég á Office forritin og sat í tímum fjóra morgna vikunnar veturinn 2001-2002. Þetta var mikil vinna og tók svo sannarlega á hálfrar aldar gamla konu. Þetta var sérlega skemmtilegur vetur og lærdómríkur. Það er ekki of sögum sagt að nýr heimur hafi opnast fyrir mér. Mjög spennandi heimur. Ég fékk einhvers konar frelsistilfinningu, fannst ég vera laus úr álögum, fór að treysta á sjálfa mig og pældi í gegnum handbækur um hin og þessi forrit enda var það liður í náminu. Skólasystkinin mín voru betri en enginn; allt kennarar með mismikla tölvureynslu og kunnáttu að baki. Þarna fór fram samvirkt nám og jafningjafræðsla.

Tæknieign.
Þetta haust fór ég og keypti fyrstu tölvuna mín. Reyndar hafði ég tveimur árum fyrr keypt gamla tölvu sem dróg úr mér alla löngun til að setjast niður og hefja uppgötvunarnám, því tölvan var mjög dyndótt og ekki hægt að koma neinu tauti við hana; karlmaður dugði ekki einu sinni til.
Það urðu sem sagt straumhvörf í lífi mínu þegar ég eignaðist nýja tölvu og lærði á hana fyrir hálfu öðru ári. Þegar mér stóð til boða tölvukennsla í Álftamýrarskóla stökk ég á tilboðið eftir nokkra umhugsun, því ég vissi að maður lærir mest á því að kenna öðrum. Það eru fljót upptalin tækin hér á heimilun fyrir utan heimilistækin. Það er náttúrlega tölvan og prentari. Við erum með ISDN tengingu. Við eigum myndavélar og höfum aðgagn að stafrænum myndavélum í vinnunni. Hver fjölskyldumeðlimur á GSM síma. Ég fékk minn fyrir tveimur árum en mér fannst ég ekkert þurfa á honum að halda en hann hefur komið í góðar þarfir á ferðalögum mínum milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur.

Tölvunotkun.
Heimilsifólkið notar tölvuna en það verður að segjast eins og er að ég einoka hana nokkuð, enda í fjarnámi við framhaldsdeild Kennarháskólans í tölvu- og upplýsingatækni! Tölvan er notuð af heimilsifólkinu til að vinna í ritvinnslu, fara á Interneti til að leita sér upplýsingar um ýmis málefni, skipuleggja ferðalög innan- og utanlands, senda tölvupóst og síðast en ekki síst til athuga stöðuna á bankareikningnum. Fyrsta skipti sem ég keypti eitthvað í gegnum Netið var að kaupa burt auglýsinguna af dagbókinni minni á blogspot.com í upphafi námskeiðsins: “Nám og kennsla á Netinu”. Ég hef hlaðið niður fríum forritum af Netinu á tölvuna mín og í skólanum. Tölvupóstinn notum við mikið og ekki síst til að hafa samband við vini og kunningja innan- og utanlands. Samskipti við “skiptinema sytur” mína sem legið höfðu niðri í nokkur ár komust aftur á í gegnum tölvupóst.
Fyrstu vefsíðuna gerði ég vorið 2002 í Rafiðnaðarskólanum.

Fyrstu kynnin.
Fyrstu kynni mín af tölvum hafa sennilega verið þegar ég byrjaði að kenna í Hvammshlíðarskólanum á Akureyri árið 1990 (til1995) sem er sérskóli fyrir þroskahefta. Þar voru til þrjár tölvur sem notaðar voru fyrir kennsluforrit sem geymd voru á stórum disklingum sem líktust einna helst mynbandsspólum. Ein tölva var á skrifstofunni. Ég fór á fyrirlestur hjá Pétri Þorsteinssyni á Kópaskeri og fræddist um Íslenska menntanetið og heyrði minnst á Láru Stefánsdóttur. Við vorum nokkrir kennarar í Hvammshlíðarskóla í nokkurs konar fjarnámi saman og sátum í kringum eina tölvu og vorum að læra að fara á Internetið og leita af bókatitlum á bókasafni Háskóla Íslands og senda tölvupóst. Ég man bara að þetta var þvílíkt torf. Í minningunni finnst mér ég hafa verið meiri áhorfandi en þátttakandi enda gátum lítið notað þetta grúsk okkar þar sem enginn okkar átti tölvu til æfa sig á.

Ég gleðst yfir að nú skuli ég vera orðin virkur þátttakandi þó seint sé í upplýsingasamfélaginu, sem mér finnst afar spennandi og skemmtilegt. Betra er seint aldrei.

Framtíðarsýn- tæknilegar aðstæður mínar árið 2013.

Á heimilinu.

Tæknilegar aðstæður mínar eftir áratug verða þannig að ég verð komin með í lófann tæki sem sameinar síma og tölvu og með beinn tengingu við mórðutölvu og Internetið, þannig að ég get haft samband við umheiminn hvar sem ég er stödd og aflað mér upplýsinga og náð sambandi við hvern sem er, hvar sem er. Á heimilið verður komin fyrirferðarlítil fartölva eða tölvur og hraðvirkur prentari, starfæn myndavél sem hægt er að taka á hreyfimyndir og venjulegar myndir.

Í skólanum.

Í skólanum verður hver nemandi með sína eigin tölvu, þar sem hann hefur stundartölfluna sína, dagbók, námsáætlanir og námsefni. Samskipti kennara og nemanda fara að stórum hluta fram í gegnum tölvu. Hver nemandi fær námsefni við sitt hæfi og kennarinn fylgist með vinnu hans og verkefnaskilum í gegnum tölvuna. Í stað þess að kennarinn gangi um gólf til að fylgist með hvernig námið gegnur hjá nemendum og aðstoði þá, situr hann fyrir framan tölvuskjáinn sinn fylgist með framvindu náms þeirra og aðstoðar eftir þörfum í gegnum tölvuna.

Innra eftirlit skólans verður að finna í gagnabanka lófatölvu kennarans þar sem hann getur athugað hvort markmiðum skólanámskráarinnar sé náð, hvort kennsluáætlunin standist. Skólastjórnendur halda utan um innra eftirlitið og geta fylgst með því hvort áætlunum og markmiðum sé framfylgt. Ef afleysingarkennari þarf að koma inn í bekkinn þá á hann að geta áttað sig á, hvar nemendur eru staddir í náminu og hvað er framundan. Verkefnaskil og próf verða öll á rafrænu formi og tölvan sér um að meta árangur nemenda út frá þeim upplýsinum sem þar eru geymdar.

Þrátt fyrir mikla tækniframfarir á síðustu áratugum og næstu, er ég sannfærð um að undratækið tölvan kemur ekki í stað góðs kennara.


0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home