Er að leggja í hann til Akureyrar á UT2003. Ég verð samferða Þórunni í flugi klukkan 11. Keyri í bæinn núna þegar ég er búin að fá mér kaffitár og greiða mér! Ég kem heim á sunndagseftirmiðdag, því ég ætla að skreppa til Húsavíkur þegar ráðstefnunni lýkur og hitta litlu krúttin mín.
Siggusetur
28.2.03
27.2.03
Ég er dauðuppgefin og ekki farin að pakka niður né undirbúa ferðina norður. Það verður samt ágætt að fara í annað umhverfið og hvíla sig á tölvunni. Liðirnir sárir og þjáðir eftir tölvuvinnu (þvílíkt puð og lítill árangur!). Ég er ákveðin í að búa til vefleiðangur um jarðhita og ég held að ég sé komin með útlitið og þá er bara eftir að semja textann. Ég er búin að ákveða vinnulag og afrakstur...
Nú skríð ég í bælið og hana nú.
26.2.03
Það eru dásamleg norðuljósin úti núna. Ég hef varla séð annað eins.
Ég er búin að vera pæla í vefleiðangrinum og ég er búin að ákveða að taka orku. Það er námefni 8. bekkjar, svo er það útfærslan á leiðangrinum, sem ég er að velta fyrir mér.
Ég lærði að búa til rammasíðu í gær og æfði mig enn meira í dag. Ég ætla að breyta útlitinu á síðunni minni, en ég vil ekki ráðast í þær framkvæmdir strax.
Það verður gaman að koma norður en mér finnst leiðinlegt að geta ekki verið viðstödd jarðarför Margrétar Þorsteinsdóttur móður vinkvenna minna Esterar og Jóhönnu.
24.2.03
Við hjónin skelltum okkur í kvennamessu í Þorlákskirkju, sr. Yrsa Þórðardóttir messaði og Kyrjukórinn sem er kvennakór hér í Þorlákshöfn söng. Einnig söng stúlknakór og tvær stúlkur léku á klarinettu og píanó. Ritningarlestrar voru lesnar af konum þeim sr. Auði Eir og Sigþrúði Harðardóttur kennara. Sr. Baldur fékk að lesa eina ritningargrein.
Seinni partinn fór ég á Kammerkórsæfingu í Hveragerði. Ég sló ekki slöku við í Dreamweaver...fór í gegnum leiðbeiningar í hjálpinni og í kennslubók. Ég reyndi líka að vinna með bloggið í Dreamweaver en þorði ekki að vista neinar breytingar inn í blogginu... ekki ennþá. Heimsótti vefsíður samnemenda minna.
Í dag eftir að ég kom heim úr vinnunni hef ég verið að stússast í tölvunni. Ég er ekki sátt við að ég geti ekki nota F12 hnappinn þegar mig langar að skoða breytingar sem ég geri á heimasíðunni minni. Það eru einhvers staðar hnökrar, væntanlega í uppsetningunni...? Ég get notað F12 hnappinn á annarri síðu sem ég hef verið að æfa mig á.
22.2.03
Ég hef verið að lesa mér til í Dreamweaver og gera ýmsar tilraunir. Lærði meira í dag en í gær. Það er drjúgur tími sem fer í þetta.
Á fimmtudaginn var ég á mjög skemmtilegum tónleikum í Þorlákskirkju hjá Tónlistarskóla Árnesinga, hjá deildinni hér í Þorlákshöfn. Þar komu fram 27 nemendur á aldrinum 7 til 18 ára og spiluðu á ýmis hljóðfæri og einn nemandinn söng. Allir spiluðu mjög vel og af öryggi. Það var unun að sjá hvað krakkrarnir voru kurteisir og prúðir. Þeir hneigðu sig fallega og brostu sínu blíðasta þegar þeir voru búnir að spila lagið sitt. Þetta gekk svo vel fyrir sig að tónleikarnir voru aðeins í rúman klukkutíma eða u.þ.b. 80 mín. Það var enginn viðvaningsbragur þar á bæ og það má þakka deildarstjóranum Julian Isaaks organistanum okkar og píanókennara sem kom til starfa nú í haust. Hann hefur greinilega lagt mikið upp úr góðri framkomu.
Guðný mín spilaði á karinettu og píanó. Annars hefur alltaf verið öflugt tónlistarlíf hér í Höfninni enda hafa verið hér öflugir tónlistarfrumkvöðlar eins og Ingimundur Guðjónsson, pabbi Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara, Hilmar Örn Agnarsson kantor í Skálholti, Karl heitinn Sighvatsson og síðast en ekki síst Róbert Darling sem lét af störfum sem organisti og tónlistarkennari í vor eftir 10 ára farsælt starf. Hann býr hér enn, en hann er nú skólastjóri Tónlistarskóla Árnessinga og stjórnar einnig skólakór Fjölbrautarskóla Suðurlands.
Læt þetta duga að sinni. Ég er búin að sitja svo lengi við tölvuna að það er kominn tími til að standa upp... og lave mad.
21.2.03
Hef verið að lesa bloggið hjá öðrum, gaman að fylgjast með pælingum annarra. Ég er að reyna að læra á Dreamweaver, en það er nú eins og það er. Ég ætla að breyta útlitinu á síðunni, en ekki fyrr en ég kann almennilega á forritið.
16.2.03
Skemmtilegt í gær í KHÍ - mjög fínn fyrirlestur hjá Ólöfu um leturgerðir... mjög skemmtilegar pælingar sem maður hafði ekki hugmynd um í sambandi við letur og fleira. Hún kom inn á ýmislegt annað og mér fannst ég græða heilmikið á að fara í skólann í gær. En satt best að segja á ég dálítið erfitt með að koma mér af stað á laugardagmorgnum... en þegar á hólminn er kominn sé ég alls ekki eftir því að hafa drifið mig.
Ég var með afmæliskaffi í dag í tilefni af afmælum okkar Sigga mínu þann 13. 2 og hans sem er á morgun. Alltaf gaman að fá fólk í heimsókn.
Við hjónin skruppum í bíó í gær eftir kennslustundina í KHÍ, innlit á sýninguna; Skóli á nýrri öld í Ráðhúsinu og verlsunarleiðangur í Kringlunni. Við sáum myndina Two Weeks Notice, Huge Grant er alltaf eins í sínum leik, en mér fannst samt skemmtilegt að sjá myndina. Alltaf gaman að fara í bíó.
12.2.03
Það er byrjað að hvessa - spáð stormi í kvöld og í nótt. Vonandi komið logn í morgunsárið...af tillitsemi við mig.. þá hefur veðrið verið verst á nóttunni undanfarna daga. Það er reyndar erfitt fyrir þá sem geta ekki sofið vegna veðurofsans.
Ég fór yfir glósurnar með Þórunni í dag, sem ég tók hjá Birni á laugardaginn í myndvinnslutímanum. Ég held að við höfum báðar haft gott af því. Mig rennur grun í að myndirnar eða borðarnir sem ég hef verið að vinna og setja á heimasíðuna séu rangt vistaðar þ.e. í pgn formi en ekki jpeg. Ég lærði þetta allavega á laugardaginn var, að það er ekki sama hvernig myndirnar eru vistaðar sem eiga að fara á vefsíðu, en sannleikurinn er sá að Björn sagði þetta líka í fyrra skiptið sem hann var með okkur, en það einhvern veginn náði ekki athygli minni þá (eða ég skildi ekki) ...en núna veit ég að pgn formið er þyngra enda eru öll lögin sem við höfum verið að vinna með vistuð í því formi, þannig að hér eftir reyni ég að muna eftir að vista (export) myndirnar í jpeg formi.
Ég gerði vefrallý um Hvalavef Rúv fyrir krakka í fjórða bekk, ég er eftir að láta þá vinna það.. spennt að vita hvort það fellur í kramið eða hvort það er nothæft. Krakkarnir hafa verið að vinna þemavinnu um hvali, þess vegna langaði mig að prófa það. Mér finnst líka gaman að búa til vefrallý, en öllu má nú ofgera.
Skyldi ég fá kaffi í rúmið í fyrramálið?
11.2.03
Ég er búin að gera vefrallý um vef Álftamýrarskóla um leið og ég reyni að æfa mig í að nota tólin í Fireworks..gengur svona upp og ofan. Svo er það blessað bloggið.. er alltaf að fikta í html..breytti nafninu á skilaboðaskjóðunni í spjallreit, en viti menn þá fór bara allt út þ.e.a.s.nafnið. Ég kom því inn aftur með því að prófa mig áfram save changes, publish og refresh... aftur og aftur. Þetta tekur þvílíkan tíma...ég þori ekki að flytja spjallgluggann ofar í kvöld, það gæti kostað mig nætursvefninn.
Og þá er það veðrið: Komið logn og blíða eftir storm sem geisaði um tíma ....sem sagt stormur á undan logninu...nei, það er öfugt?
Nú hef eignast nýtt áhugamál; veður og færð á vegum. Nú má ég ekki missa af veðurskeytunum fyrir nokkurn mun og man meira að segja símanúmerið hjá Vegagerðinni! (nenni aldrei að leggja símanúmer á minnið). Þegar maður þarf að aka frá Þorláksnöfn til Reykjavíkur á degi hverjum og svo náttúrlega heim aftur, er nauðsynlegt að fylgjast með veðri og vindum.
Mér hefur alltaf þótt óþarfi að hlusta á veðurspána og að velta sér upp úr veðrinu. Hingað til hefur verið nóg fyrir mig að gá til veðurs þegar ég vakna eða bara sleppa því. Í sveitinni í gamla daga mátti maður vart anda á meðan veðrið var tekið. Nú skil ég bændur og sjómenn vel, sem eiga allt undir veðrinu.
Þórunn sendi mér "veðurspá" í gær til að hlaða inn í tölvuna... svo ég geti haft vakandi auga með veðrinu.
8.2.03
Ég fór í Kennó í morgun... var samt tvístígandi hvort ég ætti að fara, því það gekk á með éljum og hálka á vegum. Ég er fegin að ég fór, því þegar ég kom (of seint) var Björn með kennslu í myndvinnslu. Þessi skilaboð fóru alveg fram hjá mér. Ég fékk samt bréfið frá Salvöru, en ég held að ég hafi bara lesið fyrstu línuna og búið. Þetta er ekki hægt...jæja, jæja, Þórunn var ekki mætt svo ég hringdi í hana til að láta hana vita að það væri kennsla, en þá var mín bara veik og treysti sér ekki. Ég tók niður glósur til að geta miðlað til hennar. Ég gerði ekki mikið í myndvinnslunni en sperrti eyrun og reyndi að fylgjast vel með.
Gaman að hitta samnemendur og bera saman bækur, við vorum nokkur að spjalla saman um hvernig við ættum að vinna í template-inu í blogginu, hvernig við ættum að setja inn tengla o.s.frv. Árni sagði frá hvernig hann prófaði sig áfram og það gaf mér kjark til að gera slíkt hið sama...en mér tókst að þurrka út myndir og áreiðanlega eitthvað fleira. En þetta template er ekki nógu gott...það gefur ekki mikla möguleika. Ég get ekki haft skilaboðaskjóðuna nema neðst á bloggsíðunni, en mér tókst að finna stað fyrir tenglana og svo tróð ég myndinni af mér á borðann, sem aflagaðist við það. Myndin er of stór og hrindir frá sér þar á meðal tveimur tenglum, en það gerir ekkert, ég strokaði þá bara út.
Ég er búin að hafa þvílíkar áhyggjur af heimasíðunni sem datt út. Ég eyddi miklum tíma í gær að reyna að tengja, en ekkert gekk. Ég er dálítið slæm með að fikta og var búin að fullvissa mig um að ég hefði eyðilagt hana. Ég bar upp vandræði mín við Fanný og Árna og það að ræða við þau gaf mér byr undir báða vængi að hefjast handa þegar ég kom heim og mér tókst að koma henni út. En það er ekki allt í orden....ég er með tvær index síður og mig klæjar í fingurna að henda annarri þeirra út, en ég þori það ekki. Ég hef verið of áköf að nota delete-takkann...
Nú verð ég að hvíla mig á tölvunni, svo ég verði ekki þunglynd....rannsókn sýndi fram á það að þeir sem eyða miklum tíma fyrir framan skjáinn geta átt á hættu að verða þunglyndir. Þetta heyrði ég í Kennó í morgun.
Af og til í allan dag hef ég verið að reyna að tengja síðuna mína, en ekkert gengið. Það fór eitthvað úrskeiðis um síðustu helgi. Ég vona að ég komist í KHÍ á morgun svo ég geti fengið aðstoð. Hef verið að reyna að læra á Fireworks í dag ..ég held ég hafi kannski lært tvö atriði... af milljón! Ég eyddi heillöngum tíma í að breyta útliti síðunnar minnar hafa hana með hvítum bakgrunn (eins og hún var nú reyndar í upphafi), en Sigga fannst gamla útlitið betra..og ég tók mark á honum.
7.2.03
Mikið er ég fegin að vera komin heim til mín. Ég er búin að sitja dágóða stund við tölvuna og pæla í Fireworks og prufa að breyta útlitinu á heimasíðunni. Það fer alltaf óskaplegur tími í þetta allt saman, en þetta er mjög skemmtilegt.
5.2.03
Ég svaf í Reykjavík í nótt því spáin var svo slæm, þannig að ég gat ekkert unnið í Fireworks eins og ég ætlaði, en það verður bara að hafa það. Vonandið kemst ég heim í kvöld en það er ekki víst.... spáin er ekkert sérstök.
3.2.03
Skilaboðaskjóðan mín er neðst á þessari síðu. Ég veit ekki alveg hvar ég ætti að staðsetja hana ...útlitið á þessu bloggi er svo einfallt, bíður kannski ekki upp á marga möguleika. Ég var að gera vefrallý um Hvalavef Rúv. Mér datt í hug að nota það fyrir nemendur í 4. bekk, því þeir eru að gera þemaverkefni um hvali.
2.2.03
Var að leika mér að setja mynd á borða sem ég átti og laga stafina (það lærði ég t.d. í gær eða rifjaðist upp fyrir mér), setti hana á index síðuna og ætlaði að gefa hana út að nýju, en þá varð ég að nota gömlu slóðina:http://www.ismennt.is/not/siggud/ - ég þarf aðeins að átta mig á þessu. Ég spyr Þórunni! Nú er heimasíðan mín hér með endurgerðum borða. Ég hef það nú serklega á tilfinningunni að ég muni breyta forsíðunni. Ég er ekki alveg nógu ánægð með hana. Á vefurinn ekki alltaf að vera í endurnýjun? Maður má líka að passa sig að hengja sig ekki í smáatriðin.
Mér fannst mjög gagnlegt og skemmtilegt að fara í Kennó í gær, ég lærði slatta og skemmtilegt að hitta samnemendur og kynnast þeim betur. Það var líka frábært að hafa Salvöru þarna, ég átti nú ekki endilega von á því og svo voru félagarnir svo hjálplegir.
Nú fer ég og legg mig ...og hana nú. Er ég að verða tölvunörd?
Get ekki sofið og eftir að vera búin að glugga í Moggann og fá mér smá að narta fór ég að skoða á nkn3 heimsíður samnemenda minna, sem eru allar mjög fínar. Mér til skelfingar sá ég að mín var dottin út, en mundi það þá að við breyttum slóðinni í gærmorgun í KHÍ og settum dw fyrir aftast í slóðina til aðgreiningar á Forntpage og Dreamweaver. Þannig að ef Salvör les þetta þá er þetta skýringin á hvers vegna síðan mín er úti.
Mér finnst svolítið óþægilegt hvað ég er búin að fá þessa vefsíðugerð á heilann. Ég vona að hún sé ekki að halda vöku fyrir mér. Hef svolitlar áhyggjur af því að geta lítið setið við tölvuna í dag. Ég ætla að reyna að fá mér blund aftur. Hér er heimasíðan mín.
Sigríður Guðnadóttir 