8.2.03

Ég fór í Kennó í morgun... var samt tvístígandi hvort ég ætti að fara, því það gekk á með éljum og hálka á vegum. Ég er fegin að ég fór, því þegar ég kom (of seint) var Björn með kennslu í myndvinnslu. Þessi skilaboð fóru alveg fram hjá mér. Ég fékk samt bréfið frá Salvöru, en ég held að ég hafi bara lesið fyrstu línuna og búið. Þetta er ekki hægt...jæja, jæja, Þórunn var ekki mætt svo ég hringdi í hana til að láta hana vita að það væri kennsla, en þá var mín bara veik og treysti sér ekki. Ég tók niður glósur til að geta miðlað til hennar. Ég gerði ekki mikið í myndvinnslunni en sperrti eyrun og reyndi að fylgjast vel með.

Gaman að hitta samnemendur og bera saman bækur, við vorum nokkur að spjalla saman um hvernig við ættum að vinna í template-inu í blogginu, hvernig við ættum að setja inn tengla o.s.frv. Árni sagði frá hvernig hann prófaði sig áfram og það gaf mér kjark til að gera slíkt hið sama...en mér tókst að þurrka út myndir og áreiðanlega eitthvað fleira. En þetta template er ekki nógu gott...það gefur ekki mikla möguleika. Ég get ekki haft skilaboðaskjóðuna nema neðst á bloggsíðunni, en mér tókst að finna stað fyrir tenglana og svo tróð ég myndinni af mér á borðann, sem aflagaðist við það. Myndin er of stór og hrindir frá sér þar á meðal tveimur tenglum, en það gerir ekkert, ég strokaði þá bara út.

Ég er búin að hafa þvílíkar áhyggjur af heimasíðunni sem datt út. Ég eyddi miklum tíma í gær að reyna að tengja, en ekkert gekk. Ég er dálítið slæm með að fikta og var búin að fullvissa mig um að ég hefði eyðilagt hana. Ég bar upp vandræði mín við Fanný og Árna og það að ræða við þau gaf mér byr undir báða vængi að hefjast handa þegar ég kom heim og mér tókst að koma henni út. En það er ekki allt í orden....ég er með tvær index síður og mig klæjar í fingurna að henda annarri þeirra út, en ég þori það ekki. Ég hef verið of áköf að nota delete-takkann...
Nú verð ég að hvíla mig á tölvunni, svo ég verði ekki þunglynd....rannsókn sýndi fram á það að þeir sem eyða miklum tíma fyrir framan skjáinn geta átt á hættu að verða þunglyndir. Þetta heyrði ég í Kennó í morgun.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home