22.2.03

Ég hef verið að lesa mér til í Dreamweaver og gera ýmsar tilraunir. Lærði meira í dag en í gær. Það er drjúgur tími sem fer í þetta.


Á fimmtudaginn var ég á mjög skemmtilegum tónleikum í Þorlákskirkju hjá Tónlistarskóla Árnesinga, hjá deildinni hér í Þorlákshöfn. Þar komu fram 27 nemendur á aldrinum 7 til 18 ára og spiluðu á ýmis hljóðfæri og einn nemandinn söng. Allir spiluðu mjög vel og af öryggi. Það var unun að sjá hvað krakkrarnir voru kurteisir og prúðir. Þeir hneigðu sig fallega og brostu sínu blíðasta þegar þeir voru búnir að spila lagið sitt. Þetta gekk svo vel fyrir sig að tónleikarnir voru aðeins í rúman klukkutíma eða u.þ.b. 80 mín. Það var enginn viðvaningsbragur þar á bæ og það má þakka deildarstjóranum Julian Isaaks organistanum okkar og píanókennara sem kom til starfa nú í haust. Hann hefur greinilega lagt mikið upp úr góðri framkomu.
Guðný mín spilaði á karinettu og píanó. Annars hefur alltaf verið öflugt tónlistarlíf hér í Höfninni enda hafa verið hér öflugir tónlistarfrumkvöðlar eins og Ingimundur Guðjónsson, pabbi Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara, Hilmar Örn Agnarsson kantor í Skálholti, Karl heitinn Sighvatsson og síðast en ekki síst Róbert Darling sem lét af störfum sem organisti og tónlistarkennari í vor eftir 10 ára farsælt starf. Hann býr hér enn, en hann er nú skólastjóri Tónlistarskóla Árnessinga og stjórnar einnig skólakór Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Læt þetta duga að sinni. Ég er búin að sitja svo lengi við tölvuna að það er kominn tími til að standa upp... og lave mad.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home