31.3.03

Ég held að ég viti hvað er að í "Draumnum", en mig skortir bara þekkingu til að laga það. Ég sef á þessu í nótt og ræði við sálufélagann minn, hana Þórunni.

Fegin var ég að fá bréf frá Salvöru í dag. Ég var búin að flækja PP-sýninguna þvílíkt í huganum að ég sá fram á mikla yfirlegu. Ég er svo sem búin að eyða mikilli hugarorku í þetta, en það gerir ekkert til, þessar pælingar nýtast mér síðar.

30.3.03

Ég sé að það eru fleiri en ég sem eiga í tæknilegum vandræðum. Ég tek undir það með Þórunni, það fer ótrúlega mikill tími í vangaveltur og pælingar v. tækninnar. F12-takkinn virkar ekki hjá mér (gerði það bara fyrstu vikuna), þannig að ég verð alltaf að gefa síðurnar út til að sjá hvernig þar líta út. Nú er eitthvað meira en lítið að hjá Frú Sigríði, sem ætlaði að setja nokkrar myndir út á heimasíðuna, annað hvort kemst síðan ekki út eða það virkar ekki allt á henni þegar hún er komin út á vefinn. Það koma upp alls konar villumeldingar. Manni getur nú sárnað! Annars hefur þetta gengið ágætlega hingað til ... en ég er nú samt svoldið pirruð, því tíminn er svo dýrmætur.

Nú ætla ég að láta þetta lönd og leið og fara á kóræfingu upp á Selfoss í Kammerkór Suðurland og verð sjálfsagt fram á kvöld. Það eru tónleikar um næstu helgi.
Því skyldi klukkan allt í einu vera einu tíma of fljót á blogginu?

Ég næ ekki tengja vefsíðuna mína, einhver draugur að verki. Ég reyndi að fara eftir fyrirmælunum hennar Hildar í dag, að láta nýja mynd opnast í stærri glugga. Þetta eru mjög góðar leiðbeiningar hjá henni, þó mér hafi nú ekki tekist að gera þetta alveg rétt. En mér tekst það síðar.

28.3.03

Hef aðallega verið í þrifnaði í dag og sest við tölvuna stund og stund. Las bloggin hjá samnemendum mínum, vafraði um á Netinu og fór á síðuna hjá Námsgagnastofnun og sá að það er komið framhald af bókin Á músarslóð fyrir nemendur 3.-4. bekkjar.
Ég er spennt að vita hvaða listir Þórunn er að gera á blogginu sínu!

27.3.03

Var að koma heim af aðalfundi Ferðamálafélags Ölfuss, þar voru m.a. kynntar gönguferðir ársins og sú fyrsta verður 6. apríl. Margar spennandi ferðir eru í boði. Þór Vigfússon kynnt Ferðafélagsbókina sem kemur út innan tíðar og fjallar um Ölfusið. Þór er höfundur bókarinnar og las hann upp sögu sem ekki rataði inn í bókina, en var í handritinu. Hún var af hjónunum Óskari og Blómey sem bjuggu í húsi á Hellisheiðinni um árabil, sem byggt var úr grjóti, torfi og timbri úr gömlum skíðastökkpalli. Þau fluttu þangað þegar Blesugrófin þurfti að víkja fyrir Reykjanesbrautinni, enda var hún ekki inn í skipulaginu. Óskar þessi ku hafa verið mjög ómannblendinn og vildi sem minnst af Reykjavík vita, sem hann kallaði Sódómu. Þetta var bráðskemmtileg frásögn hjá Þór Vigfússyni.

Fínn dagur í skólanum í dag, sem endra nær. Þórunn er ennþá veik, þannig að við höfum slegið rannsókninni á frest, þar til í næstu viku. Ég var að lesa á blogginu hjá Þórunni að hún er að hugsa um að gera kennsluverkefni um Háleitishverfið. Mér fannst það svoldið skondið að því ég er að hugsa um að gera verkefni um mína heimabyggð, þorpið mitt eða bæinn minn, hvað sem það verður nú látið heita. Mér datt í huga að gera PowerPoint verkefni um kennsluforrit.

26.3.03

Kom heim rétt fyrir tíu í kvöld. Þetta var ansi langur dagur en nokkuð góður. Lærði ýmislegt í DW í kvöld. Mér tókst að gera athugun á einum unglingi til viðbótar í dag( 2 eftir), en það lítur ekki út fyrir að hægt verði að ljúka þessu fyrr en í næstu viku, því Þórunn liggur í flensu og eitthvað af þátttakendunum. Best að fara að hvíla lúin bein, því upp þarf ég klukkan sex í fyrramálið.

25.3.03

Samherji eða samherja mín, hún Þórunn er veik, þátttakendurnir í rannsókninni eru veikir...og ég klóra mér bara í hausnum. Skrifaði Láru í dag og sagði henni frá því við hvers konar ástand ég byggi. Hún bað mig að taka þessu með ró.

Þegar ég kom heim beið mín bréf frá Salvöru, í sambandi við næstu verkefni, ég þarf nú að lesa það oftar en einu sinni yfir. Svo gengur í garð meltingartími...

Nú þarf ég að fara á tónleika upp í kirkju, Karlakór Sellfoss og Söngfélag Þorlákshafnar eru með sameiginlega tónleika...og það veit sá sem allt veit að ég nenni ekki.

Reyni að lesa bréfið aftur yfir frá Salvöru, þegar ég kem heim.

24.3.03

Það ætlar ekki að ganga vel að framkvæma þessar athuganir fyrir Sólveigu, tveir þátttakendur voru veikir í dag og krakkarnir í níunda og tíunda bekk fóru úr skólanum á eitthvert flandur, fyrir hádegi í dag , en mér tókst að skoða einn 13 ára dreng. Það gekk vel, held ótrauð áfram á morgun, ef guð lofar.

Ég fór í Kennó í gær og lærði loksins að búa til hnappa á heimasíðuna mína hjá Birni, þetta var mjög góður tími hjá honum. Eftir það tók við strangur og langur dagur sem hófst á æfingu í Kammerkór Suðurlands í Fríkirkjunni, síðar upp í Hallgrímskirkju og stórtónleikarnir Fíkn er fjötur hófust klukkan fimm og þeim lauk ekki fyrr en rúmlega átt og ekkert hlé! Margrét Frímannsdóttir hljóp í skarðið fyrir Jón Ársæl sem handleggsbraut sig og hún stóð sig eins og hetja og var voðalega stolt af okkur Sunnlendingunum. Söngurinn tókst vel hjá okkur og við fengum hrós!

Sá tvær mjög góðar heimildarmyndir í dag (Hlemminn og aðra um tvær tælenskar stúlkur, búsettar hér á landi) á milli þess sem ég var að vinna í draumnum og flugeldunum eins og einhverjir kalla forritin. Einnig var ég að skoða bloggsniðin og rakst á eitt sem skiptir litum.

21.3.03

Hef misst úr nokkra daga á blogginu vegna veikinda. Í gær voru stórtónleikar í FSU sem báru yfirskriftina Fíkn er fjötur og þangað fór ég vegna þess að Kammerkór Suðurlands söng þrjú lög og ég er í honum, fleiri kórar voru þarna og einsöngvarar. Elín Ósk átti að syngja en hún forfallaðist á síðustu stundu, en Jónas Ingimarsson tók bara aðra konu með sér í staðinn, Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara og spiluðu þau fjórhent á píanó. Rúsínan í pylsuendanum voru þau Loftur Erlingsson, söngvari og Katrín Sigurðardóttir, söngvari og píanóleikari. Þau fóru á kostum er þau sungu syrpu af íslensku lögum í gaman sömum tón og Katrín spilaði jafnframt undir á píanó.

Það gerði strik í rannsóknarvinnuna (!) að ég skyldi verða veik. Nú á ég eftir að skoða fjóra nemendur og taka viðtöl. Næsta vika fer í þetta. Og svo er það Kennó á morgun.

17.3.03

Ofboðslega átti Þórunn gott að fá tækifæri til að hlusta og horfa á Macbeth. Ég samgleðst henni... því það er víst ljótt að öfunda. Þetta er listviðburður. Manfred er mjög góður söngvari og er búinn að vera mörg ár í óperukórnum, honum er ýmislegt til lista lagt.

Flensa herjar á landsmenn ( og Dani, frétti ég í dag... ekki kennsluhæft í sumum skólum vegna nemenda- og kennaraskorts), það vantaði 56 nemendur í skólann í dag. Guðný búin að vera veik síðan á fimmtudag. Mér líður mjög einkennilega, ekki eins og ég á að mér að vera. Treysti mér ekki til að setjast við tölvuna, nema til að skrifa þetta og bréf til Þórunnar. Kannski er ég bara með tölvuvírus!

16.3.03

Ég var að koma af Kammerkórsæfingu,sem var á Selfossi í þetta sinn. Æfingin stóð frá sex til tíu í kvöld. Maður er alveg endurnærður, nauðsynlegt að kúpla sig frá tölvunni og næra sálina með fallegri tónlist. Mjöt létt og skemmtileg lög sem við erum að syngja núna.

þá er það næsta verkefni; byrjum að vinna að rannsókninni á morgun!, þ.e. sendum bréf heim til foreldra krakkana um hvort þeir megi taka þátt. Skólastjóranir hafa fengið sitt bréf. Næg vinna framundan.

15.3.03

Er búin að eyða mörgum klukkutímum fyrir framan tölvuna í gær og í dag. Stóð upp klukkna sjö í kvöld, labbaði út og keypti pizzu, kók og leigði myndbandsspólu. Maður verður að gera sér dagamun!

Hér er afraksturinn á skilasíðunni minni þ.e. UT og kennslan.

Einnig bjó ég til síðu um mig og mína og æfði mig í að láta texta flæða utan um myndir, Þórunn leiðbeindi mér með það. Sitthvað fleira dundaði ég mér við.

Nú slekk ég á tölvunni, ég er búin að fá krampa í höndina!

13.3.03

Var að horfa á Beðmál í borginni, þori ekki að flíka því við nokkurn mann upp í skóla að mér finnist þetta með skemmtilegri þáttum í Imbanum. Þetta er allavega eini þátturinn sem ég horfi reglulega á í sjónvarpinu á virkum dögum.

Ég er búin að skrifa verkefni 2 fyrir Láru. Ég held kannski að ég hafi miklað það fyrir mér nema að ég sé að misskilja það. Ég set það inn á vefsíðu á morgun reikna ég með. Annars tekur tíma að þýða það yfir á annað tungumál. Mér finnst það ekki skemmtilegt!

Ég er stundum svo pirruð út í sjálfa mig, hvað ég get eytt löngum tíma í heimasíðuna, alltaf að breyta, en breytingarnar verða aldrei neitt skárri og ég enda alltaf með að setja gamla lúkkið aftur út á Netið.

Missti af árshátíð skólans í dag sem var klukkan fimm, því litla barnið mitt kom heim úr skólanum fárveik og úr því ég var búin að kenna fannst mér ég verða að flýta mér heim til hennar...litla krúttið sem er í 9.bekk.

Við Þórunn fórum aðeins yfir fyrirhugaða rannsókn hjá Sólveigu í dag. Við ætlum að senda út bréf til foreldra á mánudag, um að þeir samþykki að krakkarnir taki þátt. Það er nú ekki mikill tími til stefnu. A week... ég er að æfa mig! Mér finnst að tungumálaséníin í hópnum ættu að taka að sér að þýða verkefnin, eins og Gerður og Lovísa og pottþétt leynast fleiri séní í hópnum. Það er alveg satt hjá Lovísu við erum alltaf að skrifa eitthvað um okkur sjálf. En það er náttúrlega svo gaman!!

Himneskt að þurfa ekki að vakna klukkan sex í fyrramálið. Ég elska fimmtudagskvöld og föstudagsmorgna. Í fyrrmálið vakna ég í rólegheitunum, hita kaffi og rista brauð sæki svo sængina mína og fer með hana inn í sófa, kveiki á sjónvarpinu og hjúfra mig undir sænginni, drekk kaffið og borða eina sneið af ristuðu brauði (ein nægir yfirleitt ekki). Í bítið er uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn ....á föstudagmorgnum. Ég bíð spennt eftir vínsmökkuninni... er alltaf samt undrandi á þessu sjónvarpsefni svona snemma á morgnana. Eftir þáttinn hringi ég í Sigga (manninn minn) og segi; heyrðu það var verið kynna vín frá Suður-Afríku í Í bítið og heitir........ og kostar bara ellefuhundruð og eitthvað ...eigum við kannski að prófa það í kvöld, ha? Þetta er náttúrlega ekki hægt, ég sé það núna ... hvað er þetta annað en auglýsing? Er ekki bannað að auglýsa áfengi? Svo ýtir þetta undir drykkju.... allavega hjá mér. Ég fer bara inn í eldhús á meðan vínsmökkunin fer fram í fyrramálið.

12.3.03

Þetta er búið að vera skemmtilegur dagur, sem varð einhvern veginn allt öðru vísi en hann átti að verða. Það sem gerir lífið skemmtilegt er þegar manni tekst að lifa lífinu lifandi í hversdagsleikanum, kemst í einhvert hugarástand eða upplifun. Lifir í núinu. Til dæmis fannst mér skemmtilegt að fara niður á Laugaveg í dag, þó það væri skítakuldi. Þar hitti ég Ólöfu Björnsd., gaman að hitta hana og nú er ég búin að uppgötva hvaðan ég kannast svona vel við hana! Mér fannst líka ágætt að komast að því að hún er ekki alveg með á nótunum varðandi UT verkefnið sem við eigum að gera hjá henni Láru, þannig að ég er ekki ein um það!

Annað skemmtilega í dag var þegar ég losnaði við að fara á menningarmálanefndarfund, því ég nennti ekki fyrir mitt litla líf. Í staðinn fór ég í sund í lauginni hér í Þorlákshöfn, sem er frábær, enda er maður alltaf eins og Palli einn í heiminum í henni, því það er svo fátt fólk í henni oft á tíðum. Og heiti potturinn góður. Margar vikur síðan ég hef farið í sund. Ég var alveg endurnærð.

Þriðja skemmtilega í dag voru tónleikar sem ég fór á í Þorlákskirkju, söngtónleikar með Margréti Bóasdóttur söngkonu og Miklós Dalmay píanóleikara. Þemað var: Ástin og afbrýðin, ljóasöngvar eftir Franz Schubert og Hugo Wolf. Reyndar var þetta frekar einsleit dagskrá, en mjög vel gert hjá listamönnunum. Það sem braut þetta upp og kryddaði á milli laga var lestur ljóðanna sem flutt voru, en það var leikkonan Tinna Gunnlaugsdóttir sem las. Meðan ég sat og hlýddi á söng Margrétar rifjaðist það upp fyrir mér að ég var einmitt viðstödd útskriftartónleika hennar 1975. Margrét vissi snemma hvað hún vildi verða, hún var aðeins fimmtán eða sextán ára þegar hún byrjaði að læra að syngja. Hún var með mér í Kennó, þó ekki í sama bekk. Hún söng líka í brúðkaupinu mínu ásamt öðrum krökkum sem bjuggu saman í kommúnu, allt mikið músikfólk að norðan og stofnuðu Kommúnukórinn. Jón Stefánsson spilaði undir hjá þeim og spilaði á orgelið lagið sem var aðallagið í Love Story mydninni; Where do I begin to tell the story....tral la la la . Já þetta þótti ansi frumlegt í þá daga 8. mars 1975!

Það rifjaðist líka upp fyrir mér að þessi frábæri píanóleikari frá Búlgaríu, Miklós Dalmay sem unnið hefur til verðlauna hér og víða um heim, var að þjálfa mig í söng og spila undir hjá mér, en hann starfar við TÁ og kenndi á píanó hérna í Þorlákshöfn einn dag í viku. Ég er enn að vorkenna honum að þurfa að eyða kröftum sínum í þennan viðvaning! En hann lét ekki á neinu bera a.m.k. ekkert að ráði.

Fjórða skemmtilega í dag var þegar ég kom heim af tónleikunum fór ég strax í tölvuna og sænaði mig inn á MSN og þar var Ólöf. Við byrjuðum að spjalla. Það var ansi skemmtilegt. En ég fór inn á MSN í þeirri von um að hitta á Láru. Mig langar svo að spyrja hana út í verkefnið, sem ég ætti að vera að pæla í núna en ekki að vera eyða tímanum í þetta skriferí.

Að lokum: það voru mög önnur atriði sem voru skemmtileg í dag.

Ég gleymdi að tengja Verkefni 1 hjá Láru S. á bloggið í gær, en það er hér. og gleymdi líka vefleiðangrinum, en hann er hér.

Var að ljúka við að setja inn á heimasíðuna umfjöllun mína um tvo fyrirlestra fyrir Láru Stefánsdóttur og loksins þorði ég að sleppa hendinni af vefleiðangrinum. Mér fannst ég ef til vill ekki búin með hann, en ég læt hann vaða. Hef hvort sem er ekki bætt neinu við hann síðan fyrir viku . Mig langaði svo til að búa til rammasíðu, þess vegna er vefleiðangurinn
svona upp settur, vona að það komi ekki að sök. Ég veit að Salvör er ekkert hrifin af svona síðum!

Það er nóg að gera framundan, maður lifandi! Mamma mia... klukkan að verða eitt... og ég sem fer alltaf svo snemma að sofa!

10.3.03

Nú þarf ég að vinna úr punktunum sem ég tók niður á UT2003. Ég henti þeim inn og stílaði á Láru, en ég er búin að stroka nafnið hennar út, því hún vill fá umfjöllun um tvö efni en ekki svona langloku. Ég ætla að setja nýja umfjöllun á heimasíðuna mína.

Ég er búin með vefleiðangurinn um jarðhita, var að vinna meira og minna við hann alla síðustu viku þ.e. velta vöngum, lesa mér til og pæla. Stundum vildi maður geta spurt: Má þetta vera svona? o.s.frv.

7.3.03



Punktar um ferð á UT2003 til Akureyrar.

Föstudagur 28. febrúar.


Tilgangur ferðarinnar til Akureyrar var UT2003, ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi en hún var haldin að þessu sinni í Verkmenntaskólanum á Akureyri 28. febrúar til 1. mars. Þarna var hægt að hlusta á fyrirlestra og taka þátt í málstofum einnig voru þarna nokkrir sýnendur eins og: Nýherji, Hugur, EJS, mennt.is, Vefskóli.is, Hugfang, Háskólinn í Reykjavík, Varmás, AcoTæknival, Kvasir, Mentor, Skýrr, Vefur og Skólavörubúðin.

Menntamálaráðherra setti ráðstefnuna eftir tónlistaratriði sem nemendur úr MA fluttu og eftir að ráðstefnugestir höfðu verið boðnir velkomnir af Hjalta Jóni Sveinssyni skólameistara VMA.

Guðrún Þengilsdóttir nemandi í MA flutti mjög gott erindi sem hún kallaði: Að vera eða vera ekki – með fartölvur – í fartölvubekk.

Eftir erindi Guðrúnar sem flutt var í Gryfjunni sal VMA tóku við málstofur og fyrirlestrar. Erfitt var að komast að í málsofum vegna takmarkana á þátttakendum. Úr því að ég komst ekki fyrir í B13 þar sem Frosti Heimisson fjallaði um; „Námefnið á Netið“ leitaði ég ásamt fleirum uppi stofu þar sem rúm var fyrir okkur. Laust pláss var í stofu C09 þar sem Hrafn Loftsson í HR talaði um; „Konur og tölvunarfræði“. Þetta var athyglisverður fyrirlestur og mörgum spurningum velt upp eins og hvers vegna svona lágt hlutfall kvenna væri í tölvunarfræði. Það kom fram að brýnt væri að gera eitthvað róttækt til að fá konur til að sækja námið í þessum fræðum þar sem þær væru afsaplega góðir nemendur. HR ætlar að kynna greinina og námið betur og jafnvel breyta námsefninu þannig að það höfði meira til kvenna en það hefur gert fram að þessu.

Enn þurftum við að breyta áætluninni vegna þess að við komumst ekki að í þeirri málstofu sem við höfðum ákveðið að taka þátt í.

Ég fór í Listasmiðjuna þar sem Arna Valsdóttir réði ríkjum ásamt Guðrúnu Öldu Harðardóttur, lektorar við Háskólann á Akureyri. Þær sýndu ýmsa möguleika á hvernig hægt er að leika sér með ljós og skugga og nota til þessa ýmis þekkt tæki úr kennslustofunni s.s. myndvarpann. Á hann settu þær alls konar smáa og stóra hluti og vörpuðu þeim upp á veggina. Önnur tæki voru líka notuð til að búa til ævintýraveröld ljóss og skugga eins og upptöku- og sýningavélar. Örnu bættist liðsauki nokkurra ungra stelpna á aldrinum sjö til níu ára sem hafa verið að æfa dans í dansleikhúsi hjá Önnu Ríkharðsdóttur en þær sýndu spunadans, Anna kennir við HA. Myndirnar sem birtust á veggnum og sköpuðu ævintýraheim utan um dansinn. Þær dönsuðu í ljósgeislanum og framkölluðu myndir á veggjum sem virkuðu eins og effektar Stelpurnar höfðu ekki dansað þennan dans áður en þær fengu 20 mínútur til að kynna sér rýmið sem þær dönsuðu í og semja dansinn úr frá viðfangsefni sem þær þekktu, þær spunnu í kringum söguna um Þyrnirós. Það vakti athygli mína hvað stelpurnar voru blátt áfram og létu áhorfendur ekki trufla sig í sköpuninni með ljós og skugga.

Laugardagur 1. mars.

Nína með fartölvuna sína í skólanum. Móðir hennar Kristín Steinarsdóttir tók myndina.

Sjáðu sætan skjáinn minn.Ingibjörg Haraldsdóttir og Kristín Steinarsdóttir kynntu þróunarverkefni sem þær kölluðu þessu fallega nafni: Sjáðu sæta skjáinn minn. Ingibjörg er kennari Nínu í Ártúnsskóla og Kristín mamma hennar, en Nína þjáist að sjaldgæfum sjúkdómi og á m.a. erfitt með lestur og skrift. Það sem var skemmtilegast við þessa kynningu var að sjá hve gott samstarf milli heimilis og skóla getur áorka miklu í námi barna með sértæka námsörðugleika. Kristín er heldur engin venjuleg mamma og Ingibjörg fagmaður út í fingurgóma og hefur mikla reynslu í kennslu barna með sérþarfir. Nína notar sömu tölvu í skólanum og heima sem auðveldar námið mikið þar sem umhverfið er alltaf hið sama. Í bekkjarkennslunni er lögð áhersa á samvinnunám. Tölvan er stílabók Nínu og skriffæri, þegar bekkjarfélagarnir taka upp vinnubókina og pennaveskið tekur Nína upp tölvuna. Kristín og Ingibjörg nota ritvinnsluforritið Clicker sem býður upp á að búa til orðmyndir ásamt því að skrifa orð og texta, skemmtileg myndasöfn fylgja. Þetta er bráðsniðugt forrit fyrir börn með lestrar- og skriftarörðugleika sem hægt er að nálgast á Netinu fyrir 20 þúsund krónur. Ingibjörg starfar að sjálfsögðu mjög náið með bekkjarkennaranum og aðlagar námsefni bekkjarins að námsgetu Nínu, sem sagt skóli án aðgreiningar í hnotskurn.


Hvaða gagn geta kennarar haft af norræna og evrópska skólanetinu?

Björns Sigurðsson hjá þróunarsvið menntamálaráðuneytisins kynnti Evrópska skóanetið og Odin norræna skólanetið. Meiri tími fór í kynningu á því evrópska en á Odin því tíminn flaug svo hratt ...
Evrópska skólanetið var stofnað 1997. Um 22 ráðuneyti ýmissa þjóða standa að því ásamt Evrópubandalaginu, stofnunum í einkaeign og íslenska menntamálaráðuneytið.
Björn kynnti verkefnin sem er í gangi hjá Evrópska skólanetinu en þau eru öll tímabundin.
eScholanet er upplýsinganet fyrir kennara. eSchola er haldið í þriðja skiptið í ár og gefur kennurum tækifæri til að sýna verkefnin sín í upplýsingatækni á Netinu og vinna til verðlauna fyrir þau. Einnig er tilgangurinn að starfa með öðrum skólum. Íslenskir kennarar hafa unnið til verðlauna s.s. Salvör Gissurardóttir og kennarar í Ármúlaskóla. Verðlaunaféð er nýtt að hluta til að setja yfir á ensku um hvað verkefnin fjalla.Verkefnin mega vera á íslensku.
MyErope: Þarna eru líka ýmis verkefni í gangi, en þetta er net 1200 skóla. Skólar skrá sig inn, en það er sniðugt að skrá sig inn á póstistann. Mjög mikið um fyrirspurnir um samvinnu milli skóla og bekkja.
Spring Day in Europe: Verkefni þar sem nemendur koma að gerð stjórnarskrár Evrópu. Aðaldagurinn er 21. mars. Þetta verkefni er fyrir 14-19 ára nemendur.
Comenius Space: Þeir sem taka þátt í Comenius verkefni á vegum Sókratesáætlunar í HÍ.
Virtual school: Kennsluefni á Neti sem er flokkað í 20 námsgreinar. Þarna er hægt að fá ókeypis forrit og umsagnir um þau frá kennurum sem hafa meti þau.
ETB: Vísir að evrópskri menntagátt þar sem tengja á alla gagnagrunna saman í eitt svæði.
.Safe. Öryggi á Netinu.
.eXplora: Samkeppni fyrir framhaldsskólann. Nemendur búa til efni fyrir jafnaldra sína á Netinu. Unnið með þemu og árhersla lögð á samvinnu og notkun Netsins á skapandi hátt.
Green Week: 2.-6. júní 2003.
Enis: Skólar sem stefna að því að vera frumkvöðlar í upplýsingatækni. 400 skólar í Evrópu taka þátt og af þeim fjölda eru átta íslenskir skólar en þeim mun brátt fjölga. Ávinningur að þátttöku hefur ekki verið mikill því engir peningar eru í boði fyrir skólana. Boðið er upp á þátttöku í: Ráðstefnum, samvinnu eSchola, ValNot og eXplora. Nánari upplýsingar á menntagatt.is og enis.eun.org. Enis gefur út fréttabréf sem hægt er að gerast áskrifandi að og fá sent í tölvupósti, en einnig er hægt að nálgast það á vefnum.

Odin- norræna skólanetið.
Birni þótti ástæða að vekja athygli okkar á „kontaktgalleriet“ og sjá hvað Ísland er óskaplega vinsælt hvað heimsóknir og samskipti varðar. Odin býður upp á ókeypis svæði á Neti eins og WebCt og er lokað.
Bibbi er barnabókasafn. Hægt er að finna upplýsingar um norrænt námsefni og ýmis þemu, margmiðlun, forrit og leiðbeiningar. Tímaritið Skolen i Norden. Krækjusöfn t.d. orðabækur og skolanet. Svíar eru að taka við Odin af Dönum áður en langt um líður. Og þar með var tíminn útrunninn hjá Birni...

Ásrún Matthíasdóttir lektor við Háskólann í Reykjavík tók við í sömu stofu og kynnti fyrir okkur rannsókn á : „Úttekt á íslenskum heimasíðum“. Styrkur var veittur úr Nýsköpunarsjóði námsmanna. Stuðst var við „model“ fyrir mat á vefsíðum hannað af Jakobi Nilsen. Valdir voru úr stærstu vefirnir eftir teljurum á síðunum. Fyrsta síða 40 vinsælustu vefjanna voru skoðaðar.
Markmið rannsóknarinnar var að athuga eftirfarandi:
Hvort vefurinn væri hannaður í ákveðinni upplausn.
Hvernig plássið væri nýtt.
Einkenni.
Siglingaleið.
Kynning.
Innihald.
Auglýsingar.
Skraut.
Ónotað – auð svæði.

Leiðbeingar Jokobs Nielsens sem stuðst var við í úttektinni voru t.d.:
Hleðslutími minni en 10 sek.
Ekki nota ramma, heldur töflu.
Logo staðsett efst í vinstra horni.
Leitin ofarlega á síðunni.
Nauðsynleg leit innan vefsins.
Meðferð persónuupplýsinga. Ætti að vera linkur á þær.
Ekki tónlist sem byrjar sjálfkrafa þegar síðan en ræst.
Ætti að vera hægt að breyta skjástærð (og lit á bakgrunni - ábending utan úr sal).
Litur á link breytist eftir notkun.

Vefstjórum voru send bréf og þeir spurðir um markmið vefsíðnanna og um skjáupplausn.

Að lokum - niðustöður.
Íslenskir vefir eru í söðugri þróun
Íslenskir síður nýta plásið verr en bandarískar og standa sig verr í að uppfylla þær kröfur sem lagðar voru til grundavallar.
Og þá var spurt: Vantar ekki ísl. viðmiðanir?
Og jafnvel önnur viðmið. Flestir voru sammála um að ofhlaðnir vefir (forsíðan) væri ekki fallegir, en spurning hvort að 40% ónotað svæði væri ekki of mikið af því góða. En þessa ber að gæta að hér er verið að skoða vefi fyrirtækja.

Skemmtilegri ráðstefnu lauk með samatntekt aðstoðarmanns menntamálaráðherra en mennamálaráðherra sleit síðan ráðstefnunni, eftir að Sigrún Eva Ármannsdóttir hafði lokið við að syngja tvö lög eftir Edit Piaf á frönsku til heiðurs Tómasi Inga Olrich sem kenndi henni frönsku í MA. Hún gerði þetta alveg ljómandi vel. Boðið var upp á kaffi og kræsingar í lokin.

Ég var í heild mjög ánægð með ráðstefnuna, hef reyndar engan samanburð því þetta er í fyrsta skipti sem ég fer á UT ráðsefnu. Reyndar hríslaðist smá pirringur um mann... að komast ekki inn á þær málstofur sem hugurinn stefndi til . En þarna gilti lögmálið - fyrstur kemur fyrstur fær-, en það voru ekki allir sem áttuðu sig á því að það þurfti skrásetja sig á þátttökulista.

Það kom fram í máli TIO menntamálaráðherra að jafnt hátt hlutfall var milli ráðstefnugesta af Reykjavíkursvæðinu og úr dreifbýlinu, sem sagt fiftí fiftí. Flestir þátttakenda voru af framhaldsskólastiginu, en mig minir að 21% hafi verið af grunnskólastiginu.

Ég var ánægð með alla fyrirlestrana sem ég hlustaði á... svo er það fólkið sem sækir þessar ráðstefnur... það er svo skemmtilegt og fróðlegt að hitta kollegana!

Kveðja,
Sigríður Guðnadóttir

6.3.03

Ég las í dagbók Þorkels að hann á við sama vandamál að stríða og ég. Það koma alls konar tákn í tekstann hjá mér í staðinn fyrir stafi þar sem ég skrifa textann inn, en hann birtist rétt út á vefnum. Ég segi nú bara margt er mannanna bölið. Flottar myndirnar sem Salvör sendi frá ráðstefnunni. Ég ætla að setja inn punktana fyrir Láru í kvöld, þeir eru tilbúnir.

4.3.03

Ég skil nú ekki þetta blogg, það er ekki allt með feldu. Í staðinn fyrir suma stafi koma bara tákn eða kassar.

Föstudagur 28. febrúar.

Eftir að hafa keyrt í grenjandi rigningu á föstudagsmorgun úr Þorlákshöfn og út á Reykjavíkurflugvöll var eins og að koma til útlanda þegar við stigum út úr vélinni á Akureyri. Rakt loft, en stafalogn og yndislegur ilmur í lofti.

Við dvöldum á gistiheimilinu Gulu Villunni í Brekkugötu, sem nýlega var breytt úr skóladagheimili í gistiheimili. Listakonurnar og systurnar Margrét og María Jónsdætur sáu um að innrétta húsið enda sést það á handbragðinu. Þarna eru listaverk eftir Margréti sem er leirlistakona á Akureyri og systir hennar María hefur málað skreytingar á veggina, en hún er búsett í Toscana á Ítalíu. Þetta er ekkert lúxushótel en mjög sætt og heimilislegt.

Tilgangur ferðarinnar til Akureyrar var UT2003, ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi en hún var haldin að þessu sinni í Verkmenntaskólanum á Akureyri 28. febrúar til 1. mars. Þarna var hægt að hlusta á fyrirlestra og taka þátt í málstofum einnig voru þarna nokkrir sýnendur eins og: Nýherji, Hugur, EJS, mennt.is, Veskóli.is, Hugfang, Háskólinn í Reykjavík Varmás, AcoTæknival, Kvasir, Mentor, Skýrr, Vefur og Skólavörubúðin.

Það sem mér fannst nú skemmtilegast við þessa ráðstefnu var að hvað ég þekkti marga ráðstefnugesti, ég var í því að heilsa og kyssa fólk til hægri og vinsri, enda bjó ég 14 ár á Akureyri. Mér fannst frábært að hitta allt þetta fólk.

Rúsínan í pylsuendanum var að fá far með Halldóri Valdimarssyni skólastjóra á Húsavík til Húsavíkur eftir að ráðstefnunni lauk svo ég gæti verið eina nótt hjá Steingerði dóttur minni, Hreidda tengdasyni og barnabörnunum þremur. Þetta var hin skemmtilegasta ferð í alla staði. Alltaf samt gaman og gott að koma heim til sín.