4.3.03

Föstudagur 28. febrúar.

Eftir að hafa keyrt í grenjandi rigningu á föstudagsmorgun úr Þorlákshöfn og út á Reykjavíkurflugvöll var eins og að koma til útlanda þegar við stigum út úr vélinni á Akureyri. Rakt loft, en stafalogn og yndislegur ilmur í lofti.

Við dvöldum á gistiheimilinu Gulu Villunni í Brekkugötu, sem nýlega var breytt úr skóladagheimili í gistiheimili. Listakonurnar og systurnar Margrét og María Jónsdætur sáu um að innrétta húsið enda sést það á handbragðinu. Þarna eru listaverk eftir Margréti sem er leirlistakona á Akureyri og systir hennar María hefur málað skreytingar á veggina, en hún er búsett í Toscana á Ítalíu. Þetta er ekkert lúxushótel en mjög sætt og heimilislegt.

Tilgangur ferðarinnar til Akureyrar var UT2003, ráðstefna um upplýsingatækni í skólastarfi en hún var haldin að þessu sinni í Verkmenntaskólanum á Akureyri 28. febrúar til 1. mars. Þarna var hægt að hlusta á fyrirlestra og taka þátt í málstofum einnig voru þarna nokkrir sýnendur eins og: Nýherji, Hugur, EJS, mennt.is, Veskóli.is, Hugfang, Háskólinn í Reykjavík Varmás, AcoTæknival, Kvasir, Mentor, Skýrr, Vefur og Skólavörubúðin.

Það sem mér fannst nú skemmtilegast við þessa ráðstefnu var að hvað ég þekkti marga ráðstefnugesti, ég var í því að heilsa og kyssa fólk til hægri og vinsri, enda bjó ég 14 ár á Akureyri. Mér fannst frábært að hitta allt þetta fólk.

Rúsínan í pylsuendanum var að fá far með Halldóri Valdimarssyni skólastjóra á Húsavík til Húsavíkur eftir að ráðstefnunni lauk svo ég gæti verið eina nótt hjá Steingerði dóttur minni, Hreidda tengdasyni og barnabörnunum þremur. Þetta var hin skemmtilegasta ferð í alla staði. Alltaf samt gaman og gott að koma heim til sín.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home