13.3.03

Var að horfa á Beðmál í borginni, þori ekki að flíka því við nokkurn mann upp í skóla að mér finnist þetta með skemmtilegri þáttum í Imbanum. Þetta er allavega eini þátturinn sem ég horfi reglulega á í sjónvarpinu á virkum dögum.

Ég er búin að skrifa verkefni 2 fyrir Láru. Ég held kannski að ég hafi miklað það fyrir mér nema að ég sé að misskilja það. Ég set það inn á vefsíðu á morgun reikna ég með. Annars tekur tíma að þýða það yfir á annað tungumál. Mér finnst það ekki skemmtilegt!

Ég er stundum svo pirruð út í sjálfa mig, hvað ég get eytt löngum tíma í heimasíðuna, alltaf að breyta, en breytingarnar verða aldrei neitt skárri og ég enda alltaf með að setja gamla lúkkið aftur út á Netið.

Missti af árshátíð skólans í dag sem var klukkan fimm, því litla barnið mitt kom heim úr skólanum fárveik og úr því ég var búin að kenna fannst mér ég verða að flýta mér heim til hennar...litla krúttið sem er í 9.bekk.

Við Þórunn fórum aðeins yfir fyrirhugaða rannsókn hjá Sólveigu í dag. Við ætlum að senda út bréf til foreldra á mánudag, um að þeir samþykki að krakkarnir taki þátt. Það er nú ekki mikill tími til stefnu. A week... ég er að æfa mig! Mér finnst að tungumálaséníin í hópnum ættu að taka að sér að þýða verkefnin, eins og Gerður og Lovísa og pottþétt leynast fleiri séní í hópnum. Það er alveg satt hjá Lovísu við erum alltaf að skrifa eitthvað um okkur sjálf. En það er náttúrlega svo gaman!!

Himneskt að þurfa ekki að vakna klukkan sex í fyrramálið. Ég elska fimmtudagskvöld og föstudagsmorgna. Í fyrrmálið vakna ég í rólegheitunum, hita kaffi og rista brauð sæki svo sængina mína og fer með hana inn í sófa, kveiki á sjónvarpinu og hjúfra mig undir sænginni, drekk kaffið og borða eina sneið af ristuðu brauði (ein nægir yfirleitt ekki). Í bítið er uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn ....á föstudagmorgnum. Ég bíð spennt eftir vínsmökkuninni... er alltaf samt undrandi á þessu sjónvarpsefni svona snemma á morgnana. Eftir þáttinn hringi ég í Sigga (manninn minn) og segi; heyrðu það var verið kynna vín frá Suður-Afríku í Í bítið og heitir........ og kostar bara ellefuhundruð og eitthvað ...eigum við kannski að prófa það í kvöld, ha? Þetta er náttúrlega ekki hægt, ég sé það núna ... hvað er þetta annað en auglýsing? Er ekki bannað að auglýsa áfengi? Svo ýtir þetta undir drykkju.... allavega hjá mér. Ég fer bara inn í eldhús á meðan vínsmökkunin fer fram í fyrramálið.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home