30.4.03

Alltaf jafn gaman að lesa blogg bekkjarfélaganna. Það er ekki laust við að garnirnar gauli þegar dagbók Gerðar er lesin, hún er alltaf að útbúa svo gómsæta rétti. Hún leggur örugglega slatta af sálina í réttina sem hún galdrar fram. Hún er líka skemmtilegur penni.

Ég lærði líka að synda í gömlu laugunum eins og Sólveig Friðriks, ég man einn sundkennslutíma svo vel, það gerðist ekkert sérstakt í þeim tíma, hann er bara þarna. Mig minnir að sundkennarinn heiti Helga Haraldsdóttir.

Lovísa hefur greinilega átt í sömu erfiðleikum og ég með F12 takkann, hann virkar ekki hjá mér þannig að ég þarf alltaf að fara út á Netið til að skoða síðuna. Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að fikta ef ske kynni að heimasíðan mín hryndi.

Ég sá að Hallgrímur hafði verið að skoða heimsíður bekkjarfélaganna og gaf Þorkatli hæstu einkunn. Ég var líka mjög hrifin af síðunni hans þegar ég skoðaði hana um daginn.

Það er allt hvítt hérna í Höfninni og páskliljurnar mínar undir húsveggnum skarta sínu fegursta í hvítu beði. Lýsingin af garðvinnunni hjá Rannveigu kannaðist ég við, eins og Gerður, nema að ég reitti allt upp úr beðunum því ég hélt að þetta væri allt saman illgresi en það kom í ljós að ég hafði rifið upp með rótum hinar fegurstu fjölærar jurtir.

Kristín I. fataði sig bara upp í Lindinni á Selfossi! Það er best að ég drífi mig uppeftir næstu daga, ekki veitir af að fá annan lit í klæðaskápinn en svart.

Dásamlegt að fá frí á morgun!

29.4.03

Góður dagur í skólanum í dag, fékk óvænt frí í tvo tíma og eyddi hluta af þeim tíma í að skoða síður samnemenda minna í NKN og margir eru búnir að gera mjög góða hluti eins og góð og falleg verkefni, hafa breytt útlitinu á heimasíðunum sínum o.s.frv. Ég var að ljúka við vefverkefni í Publisher; hvernig á að útbúa bækling í því forriti. Við Þórunn sátum og skipulögðum kennslustundirnar fram að vorprófum á unglingastiginu. "Jedúddamía" það eru svo fáir tímar eftir í kennslu ...ótrúlegt að skólaárið sé að líða undir lok.

28.4.03

Mikið syfjaði mig á leiðinni frá Reykjavík til Þorlákshafnar í eftirmiðdaginn, þetta er ótrúlega óþægileg tilfinning og auðvitað stór hættulegt. Veðrið var yndislegt í dag. Ég er búin að vera á haus að lesa yfir ritgerð fyrir Helgu dóttur mína. Ég vann aðeins í Publisher verkefninu mínu og nú get ég ekki meir. Ég missti af Stefáni Karli í kvöld (af því það er svo mikið að gera!) en hann var með fyrirlestur á vegum foreldrafélagsins um...einelti.... Ég fæ "rapport" frá eiginmanninum þegar hann kemur heim ef ég verð þá ekki sofnuð.

27.4.03

Fór að sjá Söngvaseið upp á Selfossi sem nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga léku og sungu. Þetta var hin ágætasta skemmtun og gott framlag hjá skólanum að brydda upp á þessu...eiginlega löngu tímabært. Þetta flokkast undir frumkvöðlastarf hjá Hrólfi söngkennara og skólastjóranum Róbert Darling.

Ég er byrjuð á kennsluverkefninu, en hef ekki enn lokið við það. Ég ætlaði að taka fyrir pappírsbrot, hafði fyrir því að æfa mig að búa til bát og frosk úr pappír um páskana og taka myndir af herlegheitunum, en ég hætti við að nota það og ákvað að taka fyrir bækling í Publisher. Ég geri hitt seinni þegar ég verð í stuði. Ég er búin að skipuleggja námskeið í Power Point og nú ætla ég að reyna að hætta að hugsa um það. Ég á svo erfitt með að sleppa hendinni af verkefnunum, held alltaf ég hafi gleymt einhverju eða að ég geti gert eitthvað betur eða öðruvísi...öllu má nú ofgera...ég meina það. Veit ekki hvort ég get byrjað strax á lokaverkefninu...kannski á fimmtudaginn...við sjáum hvað setur.


Þessi dagur var ekki drjúgur hvað tölvuvinnu snertir. Las yfir lokaritgerð dóttur minnar sem er að ljúka iðjuþjálfanámi frá Háskólanum á Akureyri í vor, komst ekki yfir að klára það verkefni í dag. Vinkona mín kom í heimsókn og var hjá mér í allan dag og var að fara núna rétt áðan.

Ég var að lesa hremmingarnar sem aumingja Baldur lent í með tölvuna sína... og svo varð hann veikur kall greyið.

Ég sá Bolette í sjónvarpsþættinum: -Glöggt er gests auga-, en það var kynningarmynd um íslenska lambakjötið og heimsókn amerískra kúreka, verslunarstjóra í stærstu verslunarkeðju U.S.A og afbragðs kokka frá fínum veitingastöðum t.d. á Manhattan. Þeir voru að kynna sér íslenska fjallalambið, aðallega voru þeir í réttum á Suðurlandi. Þeir komu við að Hæli þar sem Bolette býr ásamt fjölskyldu sinni og þar sungu dætur hennar upp á fjósloftinu- Snert hörpu mína himin borna dís- og ein þeirra spilaði undir á fiðlu , krakkarnir stóðu sig vel. Ég kom reyndar inn í þáttinn rétt þegar krakkarnir voru að syngja sá ekki upphafið á honum. Annars hljóp ég inn í stofu til að athuga hvort ekki kæmi mynd úr Tungnaréttum, því ég var nú svo fræg að hitta þessa kappa í réttunum í haust og á Vatnsleysu, þar sem Bragi móðurbróðir minn býr og Halla kona hana. Það kom mynd úr eldhúsinu á Vatnsleysu þar sem þessir frægu kokkar voru að borða réttarsúpuna, kjötsúpuna sem Halla hefur lagað í 46 ár eftir uppskriftinni hennar Ágústu ömmu á Vatnsleysu. Þeir dásömuðu súpuna í bak og fyrir og kunnu vel að meta söng gestkomandi í stofunni í austurbænum á Vatnsleysu, en það er hefð fyrir miklum og fögrum söng, enda koma félagar úr Fóstbræðrum þar við sögu.

Eins og ég sagði áðan get ég ekki vitnað í nein afrek hvað verkefnavinnu snertir, en lokaverkefnið er í vinnslu í huga mínum þó ekkert sé komið á blað og það verður nú sennilega bið á því, þar til eftir nokkra daga.

26.4.03

Var að koma heim frá því að borða ljúfengan mat á Hafinu bláa. Ég mæli svo sannarlega með því að fara þangað snæða góðan mat og njóta útsýnisins, það er eitthvað heillandi við þennan stað. Á útidyrahurðinni eru skrifuð ljóð annað þeirra er Hafið blá hafið.

Ég sat heillengi við tölvuna í dag, bara að lagfæra og setja glærusýningar út á vefinn, annars ekkert nýtt, eins og ég hef áður sagt opinberlega, þá er aldrei sest stutta stund við tövuna, tíminn er ótrúlega fljótur að líða fyrir framan skjáinn.

Á morgun halda veisluhöldin áfram, nánar um það síðar...kannski.

24.4.03

Gleðilegt sumar!

Nóg að gera í skemmtanalífinu þessa helgi. Árshátíð Álftamýrarskóla í gær...skemmti mér ljómandi vel. Við hjónin vorum að koma frá opnun veitingarstaðarins;Hafið bláa... hér í Ölfusinu í landi Hrauns rétt við Óseyrarbrúnna alveg niður við sjóinn. Frábær staðsetning með fallegu útsýni og þangað förum við annað kvöld í sextugs afmæli.

Fjölskyldan var boðin í mat til þeirra heiðurshjóna Ester og Halldórs skólastjóra Grunnskólans í Þorlákshöfn, fengum ljúfengt lambakjöt.

Fékk smá næði til að sitja við tölvuna og reyna að koma einhverju á blað í sambandi við kennsluefni á vef.

22.4.03

Mikið óskaplega getur hálf eining eða ekki það tekið hrikalega langan tíma. Ég held að maður leggi ef til vill allt of mikla vinnu í þetta, en það er svo erfitt að hætta. Svo tekur ærið langan tíma að finna út úr hlutunum, auðvitað lærir maður á þessu en fyrr má nú rota en dauðrota. Ég er sem sagt búin með skipulag námskeiðs á vef, sem var ansi tímafrekt verkefni, dauðuppgefin býð ég góða nótt.

Mikið óskaplega getur hálf eining eða ekki það tekið hrikalega langan tíma. Ég held að maður leggi ef til vill allt of mikla vinnu í þetta, en það er svo erfitt að hætta. Svo tekur ærið langan tíma að finna út úr hlutunum, auðvitað lærir maður á þessu en fyrr má nú rota en dauðrota. Ég er sem sagt með búin með skipulag námskeiðs á vef, sem var ansi tímafrekt verkefni, Dauðuppgefin býð ég góða nótt.

21.4.03

Nú er ég komin heim frá Húsavík. Þetta var yndislegur tími með fjölskyldunni og ekki síst barnabörnunum. Ég gekk a.m.k. 15 km í allt, fór tvisvar sinnum í 7 km göngu og svo var farið í sund, borðaður góður matur og hóflega drukkið vín.



Ég var ekki fyrr komin heim í gærkveldi að ég var sest við tölvuna, ætlaði rétt að athuga póstinn, Þegar ég staulaðist inn í rúm var ég búin að sitja a.m.k. þrjá til fjóra tíma fyrir framan skjáinn. Ég kíkti á námskeiðsverkefnið sem ég var byrjuð á í Power Point og byrjaði að vefa eins og þar stendur og gat ekki hætt. Verkefnið fer ekki alveg strax út á vefinn, því ég er ekki búin að gera upp við mig, hvort ég er búin með það eður ei.

Í dag hef ég einnig setið við, hélt áfram í námskeiðsverkefninu, skoðaði vefsíðurnar aðallega skilasíðuna og svo fór ég yfir bloggið hjá samnemendum mínum (sem tekur nú drjúgan tíma). Það eru margir búnir að vera ótrúlega duglegir í pákaleyfinu, búnir að búa til þessi fínu verkefni. Það er frábært að fá þessi verkefni út á vefinn, á eftir að nýta mér þau. Þetta er náttúrlega margt þaulvant fólk sem er að miðla af sinni kennslureynslu og verkefnagerð.

Má ég svo minna ykkur á spjallborðið sem er falið hér neðst á síðunni (vegna þessa að ég finn ekki annan stað fyrir það á þessu bloggi) ef þið lítið við á síðunni minni!

17.4.03

Nú er ég komin til Húsavíkur og veðrið dásamlegt logn og blíða en sólina vantar. Mér finnst það nú í góðu lagi þegar veðrið er þurrt og lygnt. Mér fannst ég lesa það um daginn hjá Gerði að hún væri líka leið á votviðrinu eins og er búið að vera upp á síðkastið. Runnarnir hér eru orðnir grænir, gróðurinn svo sannarlega komin vel á veg, eins gott að það taki ekki upp á því að fara snjóa og frysta. Ég man nú eftir snjókomu í kringum 17.júní á Akureyri forðum daga.

Húsvíkingar eru svo almennilegir, ég fékk að nota tölvu á vinnustað dóttur minnar. Annars er ég í frí frá tölvum hvað verkefnavinnu snertir meðan ég dvel hér.

Það er ýmsilegt um að vera á Húsavík og nágrenni um páskana t.d. tónleikar í Mývatnssveit með Diddú og fleirum. Píslarganga á föstudaginn langa í kringum Mývatn. Leikfélag Húsvíkur sýnir Þrúgur reiðinnar og svo er hægt að fara í sund alla bænadagana, öðru vísi en mér áður brá þegar maður mátti varla anda á föstudaginn langa.

Nú ætla ég að fara út í lognið.

16.4.03

Er að leggja í hann hvað og hverju úr rigningunni í sólina! Veit ekki hvort ég kemst til að blogga yfir hátíðarnar. Mig vantar fartölvu. Ég efast um að það sé netkaffi á Húsavík eins og í Feneyjum og Barcelóna.. Gleðilega páska!

15.4.03

Einu sinni enn skipti ég um skoðun í sambandi við verkefnið; skipulag námsefnis á vef.. Nú er ég búin að fara í hring og ákveðin að halda mig við Power Point 2000 (því ég er ekki enn komin með 2002) í staðinn fyrir Publisher, þar sem Ágústa gerði svon fínt verkefni um það í fyrra.

Ég var að skoða sýningum í Microsoft Producer frá henni Auði um dagblaðaverkefnið hennar, þetta kom vel út og er mjög skemmtileg og lifandi kennsluaðferð á vef, reyndar fannst fólki erfitt að standa fyrir framan myndavélina, en æfingin skapar meistarann.

Nú legg ég land undir fót með fjölskyldunni á morgun og leiðin liggur til Húsavíkur. Frábær spá um páskana fyrir Norðurlandið! Verst að Þórunn er að koma heim á morgun frá Ítalíanó og ég sem ætlaði að fræða hana um Microsoft Producer. Ég vona að hún verði ekki sár út í mig, enda held ég að það sé lítið að græða á mér í sambandi við þetta forrit. Ég missti af fróðleik þegar ég var að tala inn á glærurna eins og reyndar fleiri. Við reynum að hjálpast að þegar við hittumst á ný eftir páska. Annars sendi Salvör punkta með sýningunni:
"Þetta kerfi Microsoft Producer er ókeypis viðbót við Powerpoint 2002 og ef við höfum powerpoint glærur og vídeóupptöku þá getum við tekið bæði glærur og vídeóupptökuna inn í Producer, skellt þeim niður á tímalínuna og smellt á "syncronize" og farið í gegnum glærusýninguna, hlustað á fyrirlesarann tala og smellt á "next slide" þegar hann talar inn á nýja glæru. Þegar við höfum þannig farið í gegnum glærurnar þá getum við þjappað og gefið út (publish) fyrirlesturinn á vefsíðu (vefsíðurnar eru sjálfkrafa búnar til).
Sjá nánar um Microsoft Producer á http://nkn.khi.is/margmidlun/"

Kirkjan á Húsavík sem Berglind heldur svo uppá.


14.4.03

Eitthvað er maður orkulaus nýkomin í páskaleyfi. Ég er ekki en búin að ákveða hvað ég á að taka fyrir í verkefni um skipulag námskeiðs á vef. Ég er samt að hugsa um að taka fyrir Publisher, þó það hafi verið tekið í fyrra. Mér finnst það svo spennandi forrit. Ekki veit ég hvar maður fær sniðið af þessu skipulagi sem flestir nota, en Salvör þýddi það svo hægt er að spyrja hana.

Mikið er hundleiðinlegt þegar þvottavélin bilar! Hún er nú reyndar búin að þjóna okkur í yfir 20 ár en það er sama, ég er samt spæld út í hana.

blogger.com

13.4.03

Er ekkert farin að gera í verkefnavinnu, annað en að hugsa, skoða verkefni og lesa bloggin hjá hinum nemendunum.

Fór í tvær fermingarveislur í dag. Sú fyrri var í Reykjavík og var "tippikal" fermingarveisla þar sem engin samskipti eiga sér stað milli fjölskyldna því þær sitja í sitt hvoru horni stofunnar eða hópa sig saman í herbergjum (þessi var í heimahúsi). Fjölskyldurnar komu úr sitt hvorri áttinni. Önnur mjög mikil "aristókrat fjölskylda" sem veit ekki aura sinna tal og hefur völd í þjóðfélaginu. Uppistaðan í hinni eru bændur. Þar töluðu menn um hve stórkostlegt það var að fá heita vatnið í hús á sínum tíma (í sveitinni), rafmagnsreikninga, sumarbústaðarlóðir, hross, Karnaríeyjar, silungsveiði og nokkrir aulabarandarar fuku. Í hinu horninu var talað um pólitík, framboð, Ingibjörgu Sólrúnu (með glott á vör), Efnahagsbandalagið og stríðið. Ungur maður sagði yfir sig ánægður að nú væri stríðinu lokið og einungis 130 manns fallnir í valinn, bara svipuð tala og deyja í umferðinni á degi hverjum í Bandaríkjunum....hér hætti ég að leggja við hlustir því mig verkjaði í eyrun og hjartanu.
Hin fermingarveilsan var í Þorlákshöfn "tippikal" átveisla (í sal) og allir voru ánægðir með matinn. Í þeirri veilsu var ég hjálparhella í eldhúsinu og undi mér vel þar. Ungur maður kom inn í eldhúsið og spurði mig, bláókunnuga manneskjuna, af hverju þyrfti að vera svona þvingað andrúmsloft í fermingarveislum.

Páskaliljurnar eru farnar að blómstra undir húsveggnum hjá mér.

10.4.03

Var að koma eina ferðina enn af skólaskemmtun - unglingastigið hélt skemmtun fyrir foreldra og svo var ball á eftir.

Björn kenndi á Fireworks f.h., kynnti fyrir okkur gerð hreyfimynda m.a. en ég veit ekki hvort ég get gert eina slíka, en maður er alla vega að búin að fá nasasjón af því, ætti að vera auðveldara að lesa sig til um það í fínu Fireworks bókinni sem ég keypti í upphafi þessa námskeiðs og hef ekki opnað. Björn segir að hún sé fín.

Salvör sýndi okkur m.a. stílsnið í DW og notkun þeirra. Við lásum inn texta á myndband hjá Sigurbjörgu sem Salvör ætlar síðan að setja inn á glærurnar. Hún sýndi okkur hvernig á setja hljóð við glærurnar í MP forritinu og það virtist ekki vera neitt sérlega flókið þegar hún sýndi það en ég veit ekki hvernig fer þegar maður á sjálfur á að fara að leika það eftir. Ég er nú ekki viss hvernig maður setur vídeo-klippið inn í tölvuna. Við lærum það kannski á morgun.

9.4.03

Nú hef ég lokið því sem ég átti að vera búin með fyrir staðbundna lotu - gud ske love! Þá mætir maður galvaskur í KHÍ í fyrramálið. Öllu sem viðkemur Netnot-rannsókninni er lokið! Búin að fá manninn minn til að leysa mig af á Vinamóti í fimleikum hér í Höfninni á föstudagskvöldið svo ég geti tekið þátt í gleðskapnum hjá Kristínu Steinars!

Ég vona að stríðinu fari senn að ljúka - ætli að það sé von til þess?

Leiksigur hjá 10.bekk Grunnskólans í Þorlákshöfn!
Ég var að koma frá því að sjá leikritið "Síldin kemur, síldin fer" eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leikritið sjálft er mjög skemmtilegt og svo gerðu krakkarnir þetta svo vel! Allir krakkarnir í 10. bekk tóku þátt í leikritinu undir stjórn Halldórs Sigurðssonar skólastjóra og Ester Hjartardóttir átti líka stóran þátt í sýningunni. 6 krakkar úr 9. bekk skipuðu hljómsveit sem lék mjög vel undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Bakraddir sungu stelpur úr 8. bekk. Þetta var frábær skemmtun. Kaffihlaðborð í hléinu sem foreldrar sáu um og ég hef sjaldan séð svona flottar kökur!

Hef verið að vinna í heimsíðunni og svo var ég að gera hugarkort sem ég prófaði að setja út á vefinn og það gekk!

6.4.03

Af hverju leggur fólk á sig að vera í kórum, leikfélögum, námi, á námskeiðum og í alls konar klúbbum og félögum með fullu starfi?

Á föstudagskvöld hittust kórfélagar í Kammerkór Suðurlands, að þessu sinni í Þorlákshöfn, til að æfa fyrir tvenna tónleika á laugardeginum. Við æfðum til 00.30 á föstudagskvöldið og frá 10:30 um morguninn, þar til fyrri tónleikarnir hófust í Ráðhúsi Ölfus kl. 16:00. Við fórum síðan að Gömlu-Borg í Grímsnesi og æfðum þar áður en tónleikarnir hófust kl. 21:00. Þetta voru ekki bara tónleikar heldur frömdum við gjörning sem æfður var rétt fyrir tónleikana. Það var með ólíkindum að þetta skyldi hafast og vakti bara mikla lukku tónleikagesta. Kaffihúsastemning á betur við þessa dagskrá kórsins heldur en tónleikasalur, við sáum það eftir tónleikana á Borg. Þetta var sem sagt sólarhringstörn eins og hjá vinkonu minni Þórunni, sem var að næra hugann við bridge-spilamennsku hjá æskuvinkonu minni Önnu Siggu í Frost og funa.

Þórunn fór svo fallegum orðum um Þorstein bróður minn og ég sem gleymdi að geta þess að Stefán maður hennar syngur bassa í Fóstbræðrum, Þórunn hefur umsjón með síðunni þeirra.

3.4.03

Nú er rannsóknin yfirstaðin og það er viss léttir þó eftir sé að skrifa einhvers konar skýrslu til Sólveigar.

Ég fór á tónleika hjá Karlakórnum Fóstbræðrum í Langholtskirkju. Þetta voru mjög fínir tónleikar, skemmtilegt og óvenjulegt efnisval fyrir karlakór að vera. Margir einsöngvarar úr röðum kórfélaga komu fram sem gerðu tónleikana fjölbreytta. Bóðir minn Þorsteinn söng einsöng í fleiru en einu lagi og stóð sig mjög vel. Ég var mjög stolt af honum, sérstaklega í síðasta verkinu sem kórinn söng, þar mæddi mjög á honum, en hann virtist langt frá því að vera mæddur (aulahúmor). Hann er náttúrutalent.

Það er alltaf svo mikið framboð af góðum tónleikum, en það er verst að það kostar ansi mikinn pening, ef maður ætlar að stunda þá alla.

1.4.03

Ég held ég sofi bara vel í nótt, mér tókst að laga tæknilegt vandamál varðandi heimsíðuna mína. Mér brá nú frekar í brún þegar ég fór inn á síðuna áður en ég yfirgaf skólann í dag, þá voru bakgrunnar, borðar og myndir bara "væk" af síðunni. Ég vissi að það var meira en lítið að, en fyrr mátti nú rota en dauðrota!

Ég lauk við að "rannsaka" blessuð börnin í dag og sameiginlegt með þeim öllum var, hvernig þau sátu við tölvuna; vinstri hönd undir kinn og hægri hönd á músinni. Það var ekki auðvelt að ná í börnin, annað hvort voru þau veik eða í frí! Það er léttir að vera búin að þessu. Á morgun setjumst við stöllur við tölvuna og kóðum inn o.s.frv.