6.5.03

Þegar ég stóð fyrir framan hillurnar í Bónus í gær og horfði á úrvalið af hveitinu sem þeir bjóða upp á, velti ég því fyrir mér hvort hveiti væri sama og hveiti. Þarna var á boðstólnum: Hvedemel, Kornax og Pilsbury Best. Hið síðast nefnda var nærri þrefalt dýrara en hinar tegundirnar. Ég ákvað að skella mér á það dýrasta og gera könnun á gæðum hinna ýmsu hveititegunda (af því að ég hef svo lítið að gera). Á leiðinni heim var ég að hugsa hvers konar bruðl þetta væri í mér, en mundi svo eftir því að yndislega tengdamóðir elstu dóttur minnar, Alda Guðlaugsdóttir sem nú er látin, hélt því fram að Pilsbury Best væri langbesta hveitið. Hún bakaði mikið og gott bakkelsi, það gerir mamma reyndar líka og hún bakar alltaf úr Kornax hveiti. Ég mun hefja þetta rannsóknarverkefni von bráðar. Uppskriftir af Netinu.

Það má segja að hveiti sé fáfengilegt umræðuefni þegar kosningar eru eftir nokkra daga, en ég get ekki ákveðið hvað ég á að kjósa. Ég sé ekki ljósið eins og Þórhallur sem kennir með mér, hann segist sjá ljósið og það mjög skært. Ég er ekki fyrr búin að ákveða flokk að ég hætti við að kjósa hann, því einhver frambjóðandanna úr þeim flokki segir eitthvað sem ég get alls ekki tekið undir og mér finnst út í hött. Ég verð að leggjast undir feld, eða kjósa flokkinn hans afa eins og ég hét að gera þegar ég var barn að aldri. Nei, ég verð að taka ábyrga aftöðu.

Ég fór út að ganga í kulda og trekki í gærkveldi. Ég hef ákveðið að nota þessi skrif til að halda mér við efnið þ.e. hreyfinguna. Skrifin eiga að veita mér aðhald, að ég verði að fara út að ganga eða í sund til þess að ég geti skrifað um það í dagbókina. Já, það er ekki öll vitleysan eins.

Ég er líka að sinna náminu, er að vinna lokaverkefnið og það fara gott betur en fjörutíu tímar í það, er ég hrædd um.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home