12.5.03

Þá er ég búin að sitja við í allt kvöld, eða frá því að ég kom heim seinni partinn.

Ég var að setja kennsluvefinn um Þorlákshöfn út á vefinn, en ég er svo óheppinn að hafa ekki getað notað F12 takkann frá því að ég byrjaði að vefa, eins og þar stendur. Það er eflaust hægt að laga þetta en ég þori ekki að taka áhættuna rétt fyrir vertíðarlok, ef eitthvað færi úrskeiðis. Þetta tefur mann óneitanlega, því ég hef ekki geta áttað mig á því hvernig síðurnar koma út á vefnum fyrr en núna. Og þá kemur ýmislegt í ljós sem betur má fara, en reyndar var það alls ekki svo slæmt. Ég er ekki búin að lesa síðurnar yfir þannig að án efa má finna ásláttarvillur, stafsetningarvillur og einhverjar ambögur. Ég rakst til dæmis á eina setningu af tilviljun: Mig langar að taka viðtöl við frumbyggja sem enn eru á lífi (annars þyrfti ég að leita aðstoðar Þórhalls miðils).

Eins og kemur fram á blogginu hjá Þórunni vorum við að gera tilraunir í dag. Tókum hvor aðra upp á myndband og þetta var hin allra skemmtilegasta skemmtun og lærdómsrík. En það verður að segjast eins og er að ég er ekki einnarupptöku manneskja. Taka þrjú var látin duga!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home