Ég sé á dagbókarskrifum félaga minna að það eru allir á fullu að vinna að lokaverkefnunum. Það verður spennandi að lesa þau yfir og mér líst vel á verkefnavalið. Ég hlakka til dæmis að sjá kennsluvefinn um uppsetningu heimildaritgerða og svo skipulag ritgerðarkennslu, sem þær stöllur Ólöf og Sólveig eru að vinna að, ég held ég geti lært eitthvað á því!
Ég held að ég sé búin með lokaverkefnið mitt um Þorlákshöfn, en sannleikurinn er sá, að það er stundum erfitt að takmarka sig og setja punktinn. Þórunn er búin með verkefni sitt um Háaleitishverfi. Fínt verkefni hjá henni. Við fjöllum raunar um sama hlutinn og frá svipuðum tíma upp úr 1950 þ.e. uppbyggingu þéttbýlis í borg, annars vegar og út á landbyggðinni, hins vegar - við svo gjörólíkar aðstæður.
Mér hefur fundist gaman að gera þetta verkefni og hef orðið margs vísari um þetta bæjarfélag sem ég hef búið í, í nær átta ár. Ég kann eiginlega betur að meta það eftir að hafa lesið um hve frumbyggjar lögðu mikið á sig við að byggja þorpið upp og hve samstaðan hjá fólkinu var mikil. Allt hörkuduglegt fólk sem lagði það á sig að berjast fyrir góðri höfn. „En margir töldu að aldrei yrðu þau bókvirki byggð sem standast mættu heljarmátt brimöldunnar og hafrótsins“. Gömlu vermönnunum yrði líkleg starsýnt á góða höfn, grænar grasflatir og fagra trjárunna við snyrtileg íbúðarhús þar sem áður gein við svartur sandur.
Krían gargar þó enn í varpinu og fulgar kvaka í mó í þessari byggð heilags Þorláks. Amen.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home