18.5.03

Ég var að koma af burtfarartónleikum sem haldnir voru í Versölum hér í Þorlákshöfn. Jón Óskar, tvítugur Þorlákshafnarbúi, var að taka áttunda stigs próf í trompetleik og samkvæmt námsskrá þarf hann að halda tónleika. Hann stóð sig afsakplega vel eins og honum er von og vísa. Hann er fyrstur í fjörutíu ára sögu Tónlistarskóla Árnesinga til að ljúka áttunda stigi í hljóðfæraleik en hingað til hafa einungis söngnemendur útskrifast með áttunda stig frá skólanum. Og það skemmtilega við þetta er að hann skuli vera úr Þorlákshöfn. Salurinn var fullsetinn og áhorfendur létu hrifningu sína í ljós með dynjandi lófataki. Ég var nærri farin að grenja af geðshræringu en harkaði af mér. Nokkrir ungir Þorlákshafnarbúar tóku einnig þátt í tónleikunum til að létta álagið á honum og gera tónleikana fjölbreyttari. Það er alveg ótrúlegt hvað við eigum margt ungt og efnilegt fólk um land allt.

Í dag voru skólaslit TÁ í deildinni hér í Þorlákshöfn. Margir krakkar fengu skírteini upp á það að þeir hefðu lokið stigsprófi. Fjórir nemendur fengu viðurkenningu fyrir mestu framfarirnar í vetur. Margir nemendur spiluðu á hljóðfæri og stóðu sig allir einkar vel. Þegar tónleikunum lauk kom maður til okkar hjóna og sagði að það væri engum blöðum um það að fletta að Þorlákshöfn væri mekka tónlistarinnar á Suðurlandi (hann er reyndar brottfluttur Þorlákshafnarbúi). Hann hefur rétt fyrir sér í því að tónlistarlíf hér er með miklum blóma.

Afmælisveislan í gær var mjög skemmtileg. Ég lék á alls oddi. Mér fannst allt skemmtilegt og langt síðan ég hef hlegið jafnmikið. Ef til vill hefur það eitthvað að segja að þessi verkefnatörn er liðin hjá.

Og þá hefst ný vinnuvika á morgun og hún verður í styttra lagi hjá mér. Kenni bara þrjá daga. Á fimmtudaginn fer ég til Danmerkur!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home