17.5.03

Ég var í mjög skemmtilegu kvennasamkvæmi í Grafarvoginum í gærkveldi. Maturinn sem var á boðstólum var grilluð lúða og með henni voru bornir fram fylltir grillaðir tómatar, kúskús, salat og ljúffengt heimabakað brauð. Safarík jarðarber og heimatilbúið konfekt fengum við í eftirrétt ásamt góðu kaffi sem húsfreyjan renndi upp á með gamla laginu. Fordrykkurinn var rauður með jarðarberjum og rann ljúflega niður og það gerði reyndar rauðvínið líka sem borið var fram með matnum og eitthvað fram eftir kveldi. Ég rölti síðan göngustíginn heim til mömmu og gisti hjá henni í nótt.

Nú hef ég sett punktinn. Ég er búin að yfirfara og leiðrétta lokaverkefnið og allar hinar síðurnar. Það eina sem ég á eftir að gera er að laga spjallborðið mitt á blogginu svo fólk geti skrifað og sent til mín kveðju. Ég var að reyna að fá mér nýtt Tag-Board en það tókst ekki því ég átti að skrifa nafn og leyniorð en því miður er ég búin að gleyma því. Ég veit að þetta er ekki hægt.

Nú tekur við veisla númer þrjú í þessari viku. Nú verður haldið til Versala kl. sjö (salirnir heita það í Ráðhúsinu okkar) og samfagnað með honum Halldóri hennar Ránar sem verður fimmtugur á þriðjudag. Það er nauðsynlegt að gera sér dagamun!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home