7.5.03

Öll áform, um hreyfingu upp á hvern dag, hafa ekki haldið í gær né í dag vegna anna. Lokaverkefnið hefur nú aðeins setið á hakanum, en þó ekki, því ég er alltaf að spá og spekulera í útlitinu og uppsetningunni á vefsíðunum, breyta, laga og skipta um skoðun og skipta aftur um skoðun o.s.frv. (hvernig er það, eru það framsóknarmenn sem eru alltaf að skipta um skoðun, já, já , nei, nei ?)

Dóttirin er að leggja lokhönd á ritgerðina: Færni og ánægja fanga við iðju og hef ég eytt töluverðum tíma í dag að stúsast í kringum það, fékk kunningjakonu mína til að lesa hana yfir, seinni partinn í dag. Kom við í Kringlunni og fyllti körfu af ostum, rauðvíni og skúkkulaði til að konan gæti hlakkað til einhvers þegar hún væri búin með verkefnið. Ég settist síðan niður við tölvuskjáinn og leiðrétti áður en ritgerðin var send norður til Akureyrar.

Þessi blessuð tækni er engri lík! I love it!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home