Nú erum við búin að pakka niður í tösku og fara með Guðnýju til vinkonu sinnar og vinafólks okkar þar sem hún mun dvelja á meðan við verðum í Danmörku, fram á mánudag. Við þurfum að fara á fætur klukkan fjögur í nótt því er eins gott að drífa sig í háttinn.
Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum samnemendum mínum fyrir skemmtilega viðkynningu á þessu námskeiði. Ég reikna með að ég haldi áfram að „blogga“ og ég held áfram að fara á bloggsíður ykkar í von um þið haldið áfram að skrifa svo ég geti fylgst með ykkur!
Tak skal I have!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home