Nú erum við komin heim frá Danmörku. Þetta var mjög skemmtileg ferð. Voru þetta fjórir dagar? Ótrúlegt því við upplifðum svo margt á þessum stutta tíma og hittum fullt af skemmtilegu fólki. Ég skrifa ferðasöguna síðar.
Annars er alltaf gott að koma heim. Mér finnst Ísland æðislegt land! Og Íslendingar finnst mér frekar skemmtilegir, ég verð að segja það!. Annars leiðist mér þjóðarrembingur.
Gott var að koma í skólann í morgun. Ég var svolítið lengi að komast í gang en gat þó gefið nokkrum hópum einkunnir. Á morgun þarf ég að kenna heilmikið. Ég var búin að taka það í mig að ég væri búin með kennsluna. Ó nei.
Garðvinna er lítið stunduð og fer títið fyrir tiltekt á þessu heimili sökum ýmissa uppákomna sem mætti flokka undir skemmtanafíkn. Annars var Siggi duglegur þegar við komum heim um miðjan dag í gær, reif allt upp úr töskum og þvoði margar vélar meðan ég snérist í hringi í kring um sjálfa mig. Ætli það sé að vera sveimhugi?
Ég var að koma af tónleikum í Þorlákskirkju sem Söngfélgið hélt. Söngurinn var mjög jafn og góður en félagar mínir hefðu mátt vera aðeins hýrri á brún og brá, einnig vantaði nokkuð upp á túlkunina en það verður að skrifast á söngstjórann. Mér og sessunaut mínum var starsýnt á einn kórmeðlim í, lagi sem gaf gott tilefni til túlkunar, –I Feel Pretty- úr West Side Story (ég man hvað ég grét á sýningunni þegar ég sá hana í Austurbæjarbíó) en þessi kórmeðlimur var stúlka engri lík það var hún fröken nei frú Sigþrúður, önnur úr Tungunum, sem söng með mikilli innlifun í þessu lagi...það gladdi okkur... hún hreif okkur með sér! Ung stúlka söng einsöng, Gunnhildur Halla, hún söng ljómandi en það vantaði upp á túlkunina. Tveir kórmeðlimir úr altinum spiluðu á hljóðfæri, Sigríður, sem spilaði fallega á þverflautu og Ása Beglind sem spilaði, sömuleiðis, fallega á trompet. Undirleik annaðist Julian Isaacks kórstjóri og kona hans, Gunnhildur. Þetta voru ljómandi stuttir og skemmtilegir tónleikar. Alltaf gaman að fara á tónleika. En það er útséð með að ég komist á tónleikana með Kiri Te Kavanna sem ég hef alltaf haldið mikið upp á. Uppsellt!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home