3.5.03

Síðan ég byrjaði í þessu námi hefur líkamsræktin hjá mér setið mjög á hakanum (ásamt öðrum hlutum). Helsta hreyfingin sem ég fæ, þegar ég er ekki að vinna, er að ganga inn í herbergið þar sem tölvan er og setjast fyrir framan skjáinn, standa upp annað slagið og fara inn í eldhús og opna og loka ísskápnum, þetta ferli er endutekið þrisvar til fjórum sinnum eftir því hve langur tími fer í að sitja fyrir framan tölvuna.

Ég segi þetta því ég dáist að sumum samnemendum mínum sem eru svo duglegar að hreyfa sig. Lilja hleypur marga tugi kílómetra á viku, Fanný hjólar eða gengur Grafavogshringinn oft í viku sýnist mér og Gerður gegnur marga kílómetra á viku. Ég dáist að þessum konum og ætla að taka þær mér til fyrirmyndar...bráðum.

Ég var einmitt að hugsa það sama og Sólveig þegar hún segir að það sé ekki hægt annað en að hugsa um göngutúra og matargerð eftir að hafa lesið bloggið hennar Gerðar, enda fór ég í húsmæðraleik í gær, tók til og þreif og bakaði gómsætar bollur og ætlaði líka að fara í langan göngutúr hér í kringum um þorpið, en því miður komst ég ekki í hann!

Ég er komin á skrið með lokaverkefnið, þ.e. að viða að mér efni, þetta er mjög spennandi en ég verð að takmarka mig enda er Saga Þorlákshafnar til í þremur stórum bindum og annað eins á leiðinni því verið er að rita sögu staðarins frá árinu 1988 til 2001. Uppbygging staðarins hóft ekki fyrr en 1951 en þá voru búsettir hér fimm karlmenn. Svo er að hanna útlitið... mér finnst forsíðan hjá henni Þórunni á lokaverkefninu, um Háaleitishverfi, mjög fín.

Því miður get ég ekki unnið lengi í dag, því að nú þarf ég að gerast fín frú og mæta í fínt samkvæmi í fínu hverfi í Garðabæ og svo í Perluna, þannig að fyrir höndum er mikið undibúningsverk. Ég var að hugsa um hvort ég ætti ekki að byrja verkið í sundlauginni og taka þar sundsprett til að liðka stirðan háls, herðar og mjóbak.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home