1.5.03

Ásetningur minn, frá því í gærkvöldi, um að hvíla mig í dag rann út í sandinn löngu fyrir klukkan átta í morgun. Með stýrurnar í augunum skakklappaðist ég inn í tölvuherbergi (sem hét áður vinnu- eða gestaherbergi!) og settist fyrir framan tölvuskjáinn til að lesa yfir ritgerð sem dóttir mín sendi mér aftur til yfirlestrar. Ég er orðin ansi fróð um “færni og ánægju fanga við vinnu”. Tíminn leið og allt í einu var komið hádegi og ég sat enn á náttfötunum fyrir framan skjáinn, ógreidd og ísköld á fótunum.

Það voru hátíðarhöld í Versölum í nýja stjórnsýsluhúsinu okkar í Þorlákhöfn en ég tók ekki þátt í þeim. Dóttir mín fór og horfði á skemmtilatriði og keypti sér gos og hnallþórur. Maðurinn minn er að heiman þannig að ég sit hérna límd við skjáinn, en ég held að það sé komið nóg í dag. Nú er ég tilbúin að byrja á lokaverkefninu og einbeita mér að því...en ekki fyrr en á morgun.

Þvottavélin hefur verið biluð í nokkra daga og þvotturinn hlaðist upp. Það leit út fyrir að annað hvort þyrfti að gera við gömlu AEG vélina sem er orðin 24 ára fyrir tugi þúsunda eða kaupa nýja, samkvæmt upplýsingum rafvirkjans. Maðurinn minn fór í umboðið og lýsti því hvernig hún léti og afgreiðslumaðurinn var ekki lengi að átta sig á hlutunum og Siggi kom með varahlut í vélina sem kostaði rúmar 3 þúsund krónur, veit reyndar ekki hvað rafvirkinn tekur fyrir. Mikið var ég ánægð. Á þessu sést hver sér um setja í vélina á þessu heimili, ekki hefði ég getað lýst biluninni svona rækilega.

Veðrið hefur skartað sínu fegursta í dag en mér skilst að það sé kalt. Ég hef ekki farið út fyrir hússins dyr, eina hreyfingin sem ég hef fegnið er frá tölvunni og inn í eldhús til að narta (eða troða). Nú ætla ég að elda fyrir okkur mæðgurnar og reyna að leggja einhverja tilfinningu í matartilbúningin en ekki gera þetta með hangandi hendi eins og oft vill verða hjá mér í seinni tíð.

Gleðilega hátíð!



0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home