Tók mér það bessaleyfi að vera í fríi í kvöld frá verkefnavinnu, ég tel mig nú reyndar vera búna, en Guðrún Sigríks kennari hérna í Þorlákshöfn er að lesa verkefnið yfir fyrir mig. Mig langaði líka að verða mér út um fleiri myndir til að setja inn, mér finnst ég vera nota sömu myndirnar oftar en einu sinni. Ég er nú reyndar búin að fá eina sem maðurinn minn útvegaði mér með því að taka mynd af mynd í bók sem hann setti síðan á dísk. En ég ætla að geyma það að setja nýjar myndir á vefinn í kvöld enda ætla ég á bókasafnið og gramsa í gömlum myndum á föstudaginn.
Ég sé að ég verð að reyna að laga spjallborðið, ég hitti eina áðan sem sagðist hafa skrifað heillanga romsu og þagar hún ætlaði að senda það sem hún skrifaði þá bara...því miður tókst ekki að senda. Fleiri hafa kvartað yfir að geta ekki notað spjallborðið. Ég er nú dálítið leið yfir þessu því ég hef verið að minna fólk á spjallborðið, en það er til lítils ef það virkar ekki. Og þá er bara að vinda sér í að laga það, en bara ekki í kvöld!!
Það var vinnudagur án nemenda í skólanum í dag og við Þórunn nýttum tímann bara ansi vel í að skoða m.a heimasíður nemenda okkar og gefa fyrir.
Og svo þurfti að drífa sig í Höfnina á fund í Mennigarnefnd Ölfuss. Og svo... Og svo... Og svo...
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home