24.6.03

Það er búið að vera mikið um að vera hjá frú Sigríði undanfarnar vikur. Fyrst er að telja háskólahátíð Hákskólans á Akureyri þ.e. útskrift Helgu Jónu sem iðjuþjálfara. Hún stóð sig með prýði, stúlkan. Hún hélt kaffiveislu heima hjá Helenu og Sigga, vinum sínum, sem hafa reynst henni óhemju vel í gegnum tíðina, sérstaklega í vetur. Um kvöldið var hátíðarkvöldverður í Gamla Lundi. Allir nýútskrifaðir iðjuþjálfar snæddu fínan mat með fjölskyldum sínum. Við Siggi, mamma, Steingerður og Hreiddi og Óskar borðuðum að sjálfsögðu með Helgu Jónu. Þegar að líða tók á kvöldið fórum við öll til Húsavíkur, nema skötuhjúin Helga og Óskar urðu eftir á Akureyri.

Við hjónin, mamma og Guðný dvöldum á Húsavík fram á miðvikudag í síðustu viku. Þar vorum við í góðu yfirlæti Steingerðar minnar og Hreidda. Veðrið var mjög gott sérstaklega á sautjánda júní. Það var gaman að vera með barnabörnunum á hátíðarhöldunum. Ragnhildur vildi koma með til Þorlákshafnar, en það er svo mikið að gera hjá ömmunni, að það varð að bíða betri tíma.

Um helgina vorum við upp í Tröllatungu (bústaðnum okkar í Tungunum). Við fórum með vinkonurnar þrjár: Guðnýju, Rakel og Aðalbjörgu. Það var mjög ánægjulegt að hafa þessa yndislegu unglingsstúlkur með sér. Veðrið var fint. Mamma og Kolbeinn frændi voru líka í bústaðnum. Inga og Einar og voru í sínum bústað ásamt sonardóttur sinni, Ingveldi. Við eyddum laugardagskvöldinu saman.

Núna var ég að koma af æfingu úr Skálholti. Kammerkór Suðurlands er með tónleika þar um helgina, flutt verða verk eftir Gunnar Reynir Sveinsson. Nú fara í hönd stífar æfingar þ.e. fimmdag, föstudag og tónleikar bæði laugar- og sunnudag. Skálholtsstaður bíður okkur upp á gistingu og fæði. Skálholt er aðsetur okkar. Þetta er kærkomin tilbreyting frá hinu daglega amstri og námi. Ég er sem sagt á leiðinni í mjög skemmtilegt orlof með góðu og lagvissu fólki.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home