Er á leiðinn til Akureyri í útskrift Helgu Jónu dóttur okkar frá Háskólanum á Akureyri. Hún útskrifast sem iðjuþjálfi. Við fáum að gista í húsi Svans og Erlu þar sem þau eru að fara suður til að vera við útskrift dóttur sinnar úr KHÍ. Sunna útskrifast sem þroskaþjálfi. Í farteskinu er heimabakað góðgæti, franskar pylsur og ostar. Helga ætlar að bjóða vinum sínum í kaffi. Veislan verður haldin hjá vinum hennar, Helenu og Sigga, sem eru búin að reynast henni frábærlega vel í vetur. Það er ekki dónalegt að eiga svona góða vini og þeim veður seint full þakkað.
Útskriftin fer fram í Íþróttahöllinni klukkan hálfellefu á morgun. Deildin ætar að halda upp á herlegheitin í Gamla-Lundi um kvöldið með fínum kvöldverði. Það er svo sannarlega ánægjulegt að þessum áfanga sé lokið.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home