3.6.03

Þetta var ljómandi dagur í KHí í dag. Kaffi- og matartímarnir eru líka góður þá gefst tækifæri til að spjalla við hina nemendurna.

Það var margt diskuterað og ýmsar hugmyndir viðraðar og hugtök skoðuð sem gerði það að verkum að heilinn var í miklilli sveiflu á leiðinni heim (ætli ég hætti ekki að hugsa þegar ég hætti að keyra á milli Rvíkur og Þorlákshafnar). Ég virðist þurfa dágóðan tíma að melta og skilja sbr. vinkonuna hans Hallgríms Hróðmars sem þarf viku til að melta brandara. Ég varð að setjast við tölvuna og skrifa mig frá hugsununum sem sóttu á mig. Stefán Jökulsson lét okkur fá heilmikinn doðrant með fimm greinum til að lesa.

Það verðu e.t.v. úr að ég taki námskeiðið hjá Sólveigu Jakobsd. eftir allt. Ég hefði átt að tala meira um hve skynsöm ég var að taka bara tvær og hálfa einingu í sumar. Við sjáum hvað setur.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home