4.6.03

Var í Kennó til klukkan rúmlega fimm í dag að læra á SPSS forrit hjá Sólveigu og Þórönnu, ásamt eðalkvinnunum: Þórunni, Báru og Siggu Óla. Við höfðum það aldeilis gott, fengum einkakennslu (og nammi). Þetta reyndist bara mjög skemmtilegt en ég veit ekki hvort ég gæti gleymt mér alveg yfir þessu eins og sumir höfðu orð á að þeir gætu, nefni engin nöfn.

Áður en ég fór í KHÍ í morgun kom ég við í Álftamýrarskóla og dútlaði smávegis. Ég sakna þess að geta ekki tekið þátt í vordögunum (allavega pínulítið) síðustu skóladagana vegna staðbundnu lotunnar, enda var ég spurð að því hvort ég ynni þarna þegar ég kom í morgun.

Kom við hjá mömmu á leiðinni heim og kvaddi hana.Hún er að fara til Danmörku á morgun að hitta vinkonu sína sem er búin að vera viku úti í skólaferðalagi með nokkra strákagemlinga úr sérskóla í Kópavogi (sem betur fer eru þeir komnir til síns heima). Mamma lætur ekki deigan. Hún hittir áreiðanlega Sigga á Kastrup, því hann kemur með sömu vél heim og hún fer með út. Og kemur hann að tómum kofanum,blessaður, því ég er að fara með starfsmannafélaginu í Álftamýrarskóla í óvissuferð e.h. á morgun!

Svo er friðurinn úti í þorpinu á morgun því kennararnir við grunnskólann eru væntalegir frá Edinborg!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home