15.7.03

Ég fór snemma af stað í morgun úr Þorlákshöfn í Mosfellsbæinn , til Þórönnu, að hitta samnemendur mínar á námskeiði hjá Sólveigu Jakobs, auk mín og Þórönnu, voru þær eðalkvinnur Þórunn og Sigga Óla. Við komum okkur svolítið af stað í Spss forritinu.

Við Þórunn, hittum Dóru Páls á Nauthóli í hádeginu. Við áttum góða stundir saman og spjölluðum án afláts, því frá mörgu var að segja, enda langt síðan við Þórunn höfum hitt Dóru.

Mamma kom með mér til Þorlákshafnar og Helga Jóna og Óskar komu skömmu seinna. Við borðuðum grillaðan saltfisk sem var mjög góður, en örlítið of saltur. Þetta er annað kvöldið sem við borðum úti, í stafalogni og sólskini. Svona ætti þetta vera hvert einasta kvöld.


0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home