26.9.03

Skrapp til Reykjavíkur í dag að hitta Hróbjart. Ég sótti Þórunni í Austurbæjarskóla þar sem hún var á fundi. Ég fór að gamni mínu inn í skólann til að rifja upp minningar frá því að ég var í skólanum í tíu ára bekk. Kennarinn minn hét Jón Þórðarson og var mjög góður kennari. Ég man sérstaklega vel eftir ljóða- og samfélagsfærði tímunum (Íslandssögu og landafræði). Hann var ötull við að láta okkur gera vinnubækur, skrifa ljóðin fallega upp, með blekpenna, og teikna myndir við. Jón var faðir Megasar. Eina skiptið sem ég hef verið send til skólastjóra var þegar ég var í þessum skóla. Ég gleymi aldrei þeirri skelfingu. Það var ekki Jón sem sendi mig, heldur annar kennari sem kenndi nemanda sem ég áreitti með því að láta hann þefa af pipar. Ég hljóp í burtu frá kennaranum sem sótti mig og faldi mig. Þegar ég loksins fékk kjark til að fara aftur inn í bekkinn talaði Jón mig til að fara til skólastjórans. Ég var skelfinug lostin. Þetta voru þungs spor og hjartað barðist ótt og títt. Skólasjórinn (gæti hafa heitið Ástráður) tók mér vel, gaf mér sælgæti og spjallaði um allt milli himins og jarðar. Engar skammir. Síðan hef ég verið til friðs! En skólinn er nákvæmlega eins og þegar ég var í honum. Sama lyktin.

Við Þórunn fundum Hróbjart í „hrútakofanum“. Hann fór með okkur inn á Kennarastofu í Kennó! Oh, my God... ég fór í kerfi. Þarna var ég komin inn á eitthvert bannsvæði, að mér fannst. Ég hafði orð á þessu við Hróbjart. Hann ítrekaði oftar en einu sinni að við værum hans gestir og bar í okkur kaffi. Ég tíndi upp úr pokanum bakkelsið sem ég hafði keypt með kaffinu og reyndi að einbeita mér að því að borða brauðbolluna sem var ætluð mér, þau hin fengu sætabrauð. (Byrjaði í aðahaldi í morgun.Nú ætla ég að prófa fimmtudag. Mánudagarnir hafa ekki gefist vel). Kennararnir leyndu ekki undrun sinni þegar Hróbjartur stormaði inn með okkur kvinnurnar og beint í hornleðursófann. Við áttum þarna skemmtilega stund og Hróbjarti tókst að láta okkur líða bærilega innan um lektorana og doktorana. Við græddum á þessari heimsókn, því það kviknaði hugmynd að verkefni, sem ég held ég sé mjög sátt við.

Nú skríð ég upp í rúmið þar sem dóttir mín hefur hreiðrað um sig í holu pabba síns, en hann er á fundi með byggingarfulltrúum í Reykholti í Borgarfirði.

23.9.03

Stadbundin lota. 2. dagur

Þetta var ánægjulegur dagur í staðbundnu lotunni í KHÍ. Allyson Mcdonald er prýðisgóður kennari, en þrátt fyrir það, láta hugmyndir að þróunarverkefni, nýsköpun eða rannsóknarvinnu á sér standa. Við ætlum að vinna saman að verkefni ég, Þórunn og Sigga Óla og þá er eftir að koma sér saman um hvað á að taka fyrir.

Hróbjartur Árnason kom og kynnti fyrir okkur SharePoint sem er samskiptaforrit og fylgir Microsoft Office pakkanum. Við eigum eftir að taka ákvörðun um hvort við tökum þetta forrit í notkun þegar við förum að vinna að verkefninnu. Sumum leist vel á það, öðrum leist ekki á að læra á nýtt samskiptaforrit og vildu halda sig við WebCT. Hróbjartur kenndi okkur Þórunni í Rafiðnaðarskólanum og kynnt þetta forrit fyrir okkur þar, við notuðum það þegar hann kenndi okkur kennslufræði fullorðinna. Það var gaman að hitta hann á ný, mér finnst hann lifandi og skemmtilegur kennari. Hann kynnti fyrir okkur hugarkortaforritið í Rafiðnarskólanum og líka í upphafi framhaldsnámsins í KHÍ. Ég kolféll fyrir því forriti. Hróbjartur er mjög skapandi kennari og kennir í anda þeirra kennslufræði sem hann er að miðla til nemenda sinna. Hann er nú orðinn lektor í fullorðinsfærðslu í Kennaraháskólanum. Hann bauð okkur í kaffi út í hrútakofann sinn (aðstaða hans í KHÍ) næst þegar við komum í KHÍ, sem verður mjög fljótlega.

Í dag voru fínir fyrirlesarar: Sif Einarsdóttir dósent við KHÍ, hún kynnti rannsóknaverkefnið: Þróun netvæddrar áhugakönnunar fyir grunn- og framhaldskólanemendur. Kristín Jónsdóttir kennslukona (vill láta kalla sig kennslukonu) við Langholtsskóla kynnti þróunarverkefnið: Valgreinakennsla og samstarf skóla. Þetta voru mjög áhugaverði fyrirlestrar.

Rúsínan í pylsuendanum var að fara og fá sér súpu og salat með samnemendum sínum á -Pottinum og pönnunni-. Þar fengum við tækifæri til að spjalla saman sem er alveg nauðsynlegt.

Ég fékk kort fra Liz og yndislegar myndir af skiptinemafjölskyldunni minni í USA. Mikið var ég glöð að fá myndirnar.

Í kvöld hringdi Ingibjörg nokkur Sverrisdóttir sem vann með mér hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli fyrir meira en þrjátíu árum. Hún ætlar að koma í heimsókn 3. okt. með tvær aðrar, sem unnu með okkur, Sillu og Önnu Togga. Það var nú margt brallað í þá daga. Það verður gaman að rifja upp og skoða myndir úr ferðinni okkar til Acapulco í Mexico 1973.

Og þá er það kennsla aftur á morgun!

22.9.03

Stadbundin lota.

Þorsteinn bróðir kom í morgunmat til mömmu í morgun. Önnur helgin í röð sem hann kemur frá Boston. Hina helgina kom hann til að láta klippa sig og fara í réttir. Núna var það gullbrúðkaup tengdaforeldra hans og afmælisveislur. Hann kemur væntanlega ekki aftur fyrr en í desember. Það var gaman að hitta hann.

Mér fannst gaman að hitta aftur samnemendur mína í morgun. Nokkrir nýir hafa bæst í hópinn. Þetta var ágætis dagur í staðbundinni lotu. Nú er bara að láta sér detta í hug einhvert rannsóknarefni eða þróunarverkefni á sviði upplýsingatækni til að vinna að að gerð áætlunar.

Við hjónin vorum að kom heim af bráðskemmtilegu matreiðslunámskeiði, þar sem við lærðum að búa til alls konar rétti úr baunum. Námskeiðið fór fram í Hlíðardalsskóla en það voru þær, Laila, sjúkraþjálfari og Ester, tónlistarmaður sem höfðu umsjón með því. Við vorum um fimmtán þátttakendur sem brettum upp ermarnar og matreiddum þessa líka frábæru rétti úr lífrænt ræktuðu baunumog grænmeti. Við Siggi, bjuggum til austurlenskan grænmetis-baunarétt og kjúklingabaunabollur. Við söxuðum einnig niður grænmeti í forréttinn og settum eftirréttinn, sem samanstóð af hindberjum, hnetum og rjóma, í skálar. Einnig fengum við ís sem var eingöngu búinn til úr ávöxtum. Maturinn var alveg frábær og gaman að sjá hvað hægt er að gera marga góða og spennandi rétti úr mismunandi baunategundum, grænmeti og ávöxtum.

Í gær var ég allan daginn í Kennaraháskólanum ásamt Sólveigu, Þórunni, Þórönnu og Siggu Óla að vinna að skýrsludrögum um rannsókn sem við lögðum fyrir nemendur okkar sl. vetur á vegum Sólveigar Jakobsd., lektors, í KHÍ. Við fórum yfir helstu niurstöður, veltum fyrir okkur:Hvað kom áhugavert fram frá hverjum skóla fyrir sig? Og ýmislegt annað sem við kom rannsókninni. Okkur gekk bara áægtlega, en við vorum orðnar lúnar kl. fjögur. Þá fór ég í kaffi til Nönnu og fékk nýbakaða bollur og eplaköku. Það er alltaf gaman að koma í heimsókn til Nönnu minnar og fjölskyldu, notaleg og skemmtileg fjölskylda. Síðan fór ég til mömmu og gisti þar um nóttina, því í dag byrjaði staðbundi lota hjá Allyson Macdolnald á námskeiðinu (tvær og hálf eining): Rannsóknir, nýsköpun og þróunarstarf á sviði upplýsingatækni.

20.9.03

Tonleikar i Basnum

Siggi, keyrði okkur Hemma, Róbert, Jóhönnu og mig í Básinn í Ölfusi kl. 9.30 í morgun. Meðlimir Kammerkórs Suðurlands voru mættir þar til að æfa söngdagskrána: Gengið á lagið, sem flutt var kl.16.00 í dag. Við æfðum leikræna uppsetningu undir stjórn Eddu Björgvinsdóttur, leikkonu. Þetta var afskaplega skemmtilegt en aðeins of naumur tími, því öll orkan fór í að skipuleggja hver átti að segja hvað, hvernig við áttum að hreyfa okkur, hvar við áttum að standa en minna fór fyrir söngæfingu. Tími vannst ekki til að renna í gegnum þetta aftur, því varð að láta slag standa og kýla á þetta. Þetta var náttúrlega lífsreynsla út af fyrir sig. Fyrir mitt leyti er ég mjög hissa á, að við skyldum þó komast klakklaust frá þessu. Vissulega máttu margt betur fara, en hvenær má það ekki? Tónleikagestir voru á bilinu 40 til 50.

Kristín okkar Sigfúsdóttir, formaður kórsins, kom með litlu stúlkuna sína sem er aðeins mánaðar gömul. Hamingjan skein af þeim hjónum.

Dagurinn var mjög skemmtilegur og lærdómsríkur. Edda er mjög góður leiðbeinandi með einstaklega góða nærveru.

Vestmannaeyjar

Kennaraþing var að þessu sinni haldið í Vestmannaeyjum 18. og 19. sept. Þingið var hið skemmtilegasta í alla staði. Maturinn, sem heimamenn buðu okkur upp á, var sérstaklega góður. Ég fór líka á tvo góða fyrirlestra. Á öðrum þeirra kynnti Kristín Jóhannesdóttir kennsluforrit og kennsluefni á neti, fyrir dönskukennslu. Hinn fyrirlesturinn fjallaði um breytta kennsluhætti í tungumálakennslu, sem var í umsjón Huldu Karenar. Rúsínan í pylsuendanum var að hitta bekkjarsystkinin úr Kennó, Finnboga Sigurðsson, formann Kennarafélags grunnskólakennarar, Guðna Óskars, kennarar í Hveragerði og Andrés Sigurvinsson sem er nýtekinn við stöðu fræðslu- og menningarfulltrúa í Vestmannaeyjum. Við sátum fjögur saman við borð, út í horni, í langan tíma á ballinu og rifjuðum upp skemmtileg atvik frá Kennaraskólaárunum, hlógum, sungum og enduðum á því að dansa. Daginn eftir bættist annar F-bekkingur við, Steinunn Torfadóttir, sem hélt fyrirlestur á þinginu, um dyslexíu. Hún er nýráðin lektor við KHÍ. Andrés kom og drakk með okkur félögunum miðdegiskaffi og ók okkur síðan niður á bryggju, í Herjólf. Við vorum ákveðin í að hittast oftar en við höfum gert hingað til. Krakkarnir í þessum bekk voru sérlega skemmtilegir. Hátt hlutfall þeirra fór í kennslu og eru enn að.... Ég hitt fleiri kennarar sem voru með mér í Kennó... og það er það sem er svo frábært við kennaraþingin að hitta gamla skólafélaga!

Við, Elfa Eyþórs bekkjarsystir mín og ég, vorum í æfingakennslu í viku í Vestmannaeyjum 1972. Það er ógleymanlegt hvað var tekið vel á móti okkur. Þetta var í alla staði frábær vika!!!

10.9.03

Mi?vikudagur 10. september

Vikan hálfnuð og bráðum helgi... og nýbúin að vera helgi. Mikið skelfing líður tíminn fljótt!

Ég er búin að lesa tvær greinar á námskeiðinu: Rannsóknir, nýsköpun og þróunarstarf á sviði upplýsingatækni - sem ég sótti á Veftímaritið Netlu. Önnur er eftir Allyson Macdonald sem er umsjónarmaður námskeiðsins og hin er eftir Guðrúnu Kristinsdóttur, báðar eru þær lektorar við Kennaraháskólann. Það var gaman að lesa þessar greinar en óneitanlega er þetta vísindalega umhverfi, sem fjallað er um í greinunum, afar framandi fyrir mig, en gaman að skyggnast inn í það. Ég er búin að skrifa hugleiðingar um þær en ég á eftir að setja þær út á WebCT. Mér finnst ég hafa takmarkað til málanna að leggja í þessa umræðu. Þá liggja fyrir tvær viðamiklar greinar á ensku sem ég þarf að fara að hjóla í. Mamma mía!

Það er bót í máli að námskeiðið: Stafæn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla, sem Salvör Gissurardóttir sér um, byrjar ekki alveg strax af tæknilegum ástæðum.

Þorsteinn bróðir hringdi frá Boston til að reka á eftir mydnunum sem ég lofaði að senda honum um daginn. Nú lét ég verða af því og vona að þær hafi komist til skila. Alltaf gamana að heyra í þessari elsku. Hann kemur um helgina til að fara í Tungnaréttir. Engar réttir án hans!

6.9.03

Nú er nærri liðnir tveir mánuður síðan að við kvinnur í lesnámi/vettvangsnámi hittumst síðast og nú er víst tími til að huga að verkefnum og skýrslum. Það var að minnsta kosti að heyra á Sólveigu Jakobsdóttur í bréfinu sem hún sendi okkur í dag. Það eru tvö önnur námskeið að byrja í náminu annað heitir: Stafræn gjá eða upplýsingasamfélag fyrir alla sem Salvör Gissuradóttir hefur umsjón með og hittir er um rannsóknir, nýsköpun og þróunarstarf í upplýsingatækni sem er í höndum Allyson Macdonald. Það er ekki sopið kálið þó í ausuna sé komið.

Annars var ég að koma frá Sólheimum í Grímsnesi þar sem Kammerkórinn var að æfa eða rifja upp söngdagskrá sem við fluttum í vor. Það var yndislegt að vera þarna og hitta félagana á nýjan leik og syngja saman. Þetta er skemmtilegt samfélag þarna að Sólheimum og kemur á óvart hve mikil uppbygging hefur átt sér stað í gegnum tíðina. Við æfðum í Sesseljubúð en gistum í Brekkukoti og fengum morgunmat á Grænu könnunni.