23.9.03

Stadbundin lota. 2. dagur

Þetta var ánægjulegur dagur í staðbundnu lotunni í KHÍ. Allyson Mcdonald er prýðisgóður kennari, en þrátt fyrir það, láta hugmyndir að þróunarverkefni, nýsköpun eða rannsóknarvinnu á sér standa. Við ætlum að vinna saman að verkefni ég, Þórunn og Sigga Óla og þá er eftir að koma sér saman um hvað á að taka fyrir.

Hróbjartur Árnason kom og kynnti fyrir okkur SharePoint sem er samskiptaforrit og fylgir Microsoft Office pakkanum. Við eigum eftir að taka ákvörðun um hvort við tökum þetta forrit í notkun þegar við förum að vinna að verkefninnu. Sumum leist vel á það, öðrum leist ekki á að læra á nýtt samskiptaforrit og vildu halda sig við WebCT. Hróbjartur kenndi okkur Þórunni í Rafiðnaðarskólanum og kynnt þetta forrit fyrir okkur þar, við notuðum það þegar hann kenndi okkur kennslufræði fullorðinna. Það var gaman að hitta hann á ný, mér finnst hann lifandi og skemmtilegur kennari. Hann kynnti fyrir okkur hugarkortaforritið í Rafiðnarskólanum og líka í upphafi framhaldsnámsins í KHÍ. Ég kolféll fyrir því forriti. Hróbjartur er mjög skapandi kennari og kennir í anda þeirra kennslufræði sem hann er að miðla til nemenda sinna. Hann er nú orðinn lektor í fullorðinsfærðslu í Kennaraháskólanum. Hann bauð okkur í kaffi út í hrútakofann sinn (aðstaða hans í KHÍ) næst þegar við komum í KHÍ, sem verður mjög fljótlega.

Í dag voru fínir fyrirlesarar: Sif Einarsdóttir dósent við KHÍ, hún kynnti rannsóknaverkefnið: Þróun netvæddrar áhugakönnunar fyir grunn- og framhaldskólanemendur. Kristín Jónsdóttir kennslukona (vill láta kalla sig kennslukonu) við Langholtsskóla kynnti þróunarverkefnið: Valgreinakennsla og samstarf skóla. Þetta voru mjög áhugaverði fyrirlestrar.

Rúsínan í pylsuendanum var að fara og fá sér súpu og salat með samnemendum sínum á -Pottinum og pönnunni-. Þar fengum við tækifæri til að spjalla saman sem er alveg nauðsynlegt.

Ég fékk kort fra Liz og yndislegar myndir af skiptinemafjölskyldunni minni í USA. Mikið var ég glöð að fá myndirnar.

Í kvöld hringdi Ingibjörg nokkur Sverrisdóttir sem vann með mér hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli fyrir meira en þrjátíu árum. Hún ætlar að koma í heimsókn 3. okt. með tvær aðrar, sem unnu með okkur, Sillu og Önnu Togga. Það var nú margt brallað í þá daga. Það verður gaman að rifja upp og skoða myndir úr ferðinni okkar til Acapulco í Mexico 1973.

Og þá er það kennsla aftur á morgun!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home