Af hverju opin dagbók?
Af hverju opin dagbók?
Ég hef ekkert bloggað upp á síðkastið. Það var úr mér allur vindur þegar ég lenti í að rökræða blogg við vinafólk mitt. Þeim fannst undarlegt að fólk skrifaði dagbók fyrir opnum tjöldum. Til hvers? Það er nú einmitt það, til hvers? Ég byrjaði að skrifa dagbók í námi mínu í KHÍ á námskeiði sem bar nafnið Nám og kennsla á Netinu. Tilgangurinn var fyrst og fremst að skrifa um framvindu námsins og ýmsar hugleiðingar þar að lútandi. Við gátum fylgst með samnemendum okkar og haft samskipti við þá í gegnum bloggið. Viti menn,mér fannst bæði gaman að skrifa í opna dagbók og lesa hjá öðrum! Ég hélt því áfram eftir að námskeiðinu lauk. Mér finnst þetta eiginlega frábær uppgötvun að nýta tæknina á þennan máta. Ég get fylgst með vinum og vandamönnum í gegnum bloggið og þeir með mér. Reyndar held ég að það séu nú afskaplega fáir sem lesa dagbókina mína því ég hef ekki haldið þessari iðju minni á lofti, enda er ég að skrifa fyrir sjálfa mig. Í þessum skrifum reynir maður að koma orðum að hugsun sinni og þjálfar heilabúið í leiðinni. Vinarfólki mínu fannst að blogg gæti verið stórhættulegt. Það gæti skemmt mannorð fólks og lagt það jafnvel í einelti. Það getur vel verið að það sé eitthvað til í því. Þetta er spurning um siðferðiskennd og almenna kurteisi. En ég get ekki séð neitt því til fyrirstöðu að fólk tæpi á skoðun sinni í dagbókarskrifum svo fremi sem aðgát sér höfð í nærveru sálar. Nú byrja ég að blogga að nýju mér til yndis og ánægju og læt lönd og leið álit fólks á bloggi.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home