Er laufblöð falla.
Haustið er gengið garð, laufblöð falla af trjánum, kindur komnar af fjalli og bíða örlaga sinna. Og ég búin að taka slátur, mamma sá til þess. Hún kom um síðustu helgi með fimm slátur í farteskinu. Hún var búin að sauma keppina þannig að þetta var engin svaka vinna, ekki eins og þegar við Siggi tókum 25 slátur með vinafólki okkar norður á Akureyri. Það líður mér seint úr minni, þvílík vinna. Ég held að ég hafi fengið ofnæmi fyrir slátri um hríð. Daginn eftir sláturgerðina fannst móður minni alveg upplagt að taka eldhússkápana og gera hreina fyrir dóttur sína sem að veikum mætti reyndi að malda í móinn. Þetta reyndist mikil vinna því það nægði ekki að þrífa skápana, ó nei, glös og ýmis búsáhöld voru þvegin áður en sett var í skápa að nýju. Ég var eitthvað að reyna að hjálpa til. Mamma er ótrúleg kona, þvílíkur dugnaðarforkur og er rétt að verða 78 ára!
Og þá er undirbúningu jólanna á næsta leiti!
Litla krúttið mitt á Húsavík, elsta barnabarnið mitt, á afmæli dag og er 12 ára. Til hamingju Sigurður Ágúst!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home