5.10.03

Góða veislu gjöra skal.

Í dag á Guðný mín afmæli og er fimmtán ára. Hún var vakin af rosknum foreldrum sínum með afmælissöng, logandi kerti, súkkulaði og bakkelsi. Hún er yndið okkar yngsta og besta.... hinar dæturna eru líka yndislegar. Hún lagði sig eftir sönginn og morgunverðinn og svaf fram að hádegi! Þreytt og svefnlítil eftir kórbúðir í Skálholti á föstudag og laugardag.

Ég eyddi deginum í elhúsinu við að undirbúa kaffi og mat fyrir væntanlega gesti. Mamma, Helga og Óskar komu í kaffi og fengu heimabakaðar bollur, hafrakex, franska súkkulaðiköku og súkkulaðivöfflur.Með þessu var borinn fram rjómi, ostar, heimalagað aldinmauk, vínber og jarðarber. Um kvöldmatarleytið bættust í hópinn vinkonurnar Rakel og Aðalbjörg með foreldrum sínum. Nú var borið fram fjögra kílóa læri frá Engilbert á Bakka sem steikt var á hefðbundinn hátt í svörtum steikarpotti ásamt kartöflubátum krydduðum með kúmeni. Í eftirrétt voru pönnukökur með Nóakroppi.

Loksins var gott tilefni til að borða lærið frá öðlingnum honum Berta á Bakka sem kom færandi hendi síðast liðið haust. Hann hefur komið með kjöt handa okkur nokkur undanfarin haust. Það er ótrúlegt hvað hann er rausnarlegur við okkur. Hvað höfum við gert til að verðskulda gjafmildi hans? Hann þekkti afa vel, Þorstein Sigurðsson frá Vatnsleysu og segir alltaf sögur af honum frá Búnaðarþingum hér áður fyrr. Mér finnst gaman að heyra þær og þær fylla mig stolti.

Þá er það staðbundin lota á morgun í KHÍ. Leiðinlegt að þurfa að fá svona oft frí úr skólanum og alltaf á sömu dögum, mánudögum og þriðjudögum. En þetta er vegna þess að ég er í tveimur tveggja og hálfrar einingar kúrsum. Ég kem aftur heim á þriðjudag.

Þetta var skemmtilegur afmælisdagur með góðu og notalegu fólki.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home