9.10.03

Kirtlataka, nám og söngur.

Í gær fór Guðný í kirtlatöku á gamla Borgarspítalann. Hún var mætt ásamt pabba sínum klukkan hálf níu en komst ekki að fyrr en að ganga eitt. Ég fór í bæinn eftir hádegi og við vorum öll komin heim um sexleytið. Aðgerðin gekk ljómandi vel en hún er á sterkum verkja- og bólgueyðandi lyfjum þannig að hún er ansi slöpp og reisir vart höfuð frá kodda.

Ég var í staðbundinni lotu á mánudag og þriðjudag í KHÍ. Námskeiðið heitir "Stafræn gjá" og umsjónarmaður þess er Salvör Gissurardóttir. Eftir námskeiðin, báða dagana, unnum við Þórunn, Sigga Óla og ég að verkefni sem við erum að vinna á námskeiðinu hjá Allyson Macdonald, en það námskeið heitir "Rannsóknir, nýsköpun og Þróunarstarf á sviðið upplýsingatækni ". Þetta er svolítið torf en við erum allavega komnar með hugmyndir til að vinna úr. Það verður nóg að gera á næstu vikum. Og svo er það Kammerkórinn tvennir tónleikar um helgina, föstudag á Sólheimum og á Borg í Grímsnesi og laugardag verðum við í Iðnó. Eftir tónleikana ætlum við að halda nokkurs konar árshátíð og fara út að borða á veitingastað sem heitir Austur Indía fjelagið og er á Hverfisgötu. Það ku vera gott að borða þar.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home