14.10.03

Söngur, glens og gaman.

Tónleikarnir á Borg í Grímsnesi og Iðnó heppnuðust mjög vel. Það var rífandi stemning í gamla vinalega húsinu á Borg. Fullt út úr dyrum. Bjarni Harðarson draugasérfræðingur sagði sögur fyrir tónleika og gerði mikla lukku og það gerði Kammerkór Suðurlands reyndar líka. Tónleikagestir stóðu upp og hylltu kórinn fyrir söng og leik. Laugardagurinn var líka mjög skemmtilegur. Gaman að syngja í Iðnó, þessu fallega, gamla húsi. Ég á svo góðar minngar þaðan, þegar ég var í Kennaraskólanum fengum við leikhúsmiða á niðursettu verði og ég notaði mér það óspart. Ég sá eftirminnilega sýning þar fyrir um 30 árum, hún hét: „Fangarnir í Altóna“ Helgi Skúlason lék aðalhlutverkið ásamt Helgu Backmann. Einnig sá ég sýningu eftir Jökul Jakobsson sem ég man ekki hvað hét en Edda Heiðrún Backmann var þá að stíga sín fyrstu spor á leiksviði. Eftir tónleikana borðuðum við indverskan mat hjá Austur Indía Fjelaginu og skemmtum okkur konunglega fram eftir kvöldi og nóttu. Fórum á „Næsta bar“ sem fylltist af frægu fólki upp úr miðnætti. Ég fylgdist grant með sætu leikurunum. Það er svo gaman að virða fólk fyrir sér. Kvöldið endaði þannig að ég ók ein heim til Þorlákshafnar því samfylgdarmaður minn var numinn á brott á ball á Selfossi af félögum okkar sem voru komnir í rokna ballstuð.

Nú hefur Kammerkórin tekið sér frí fram í miðjan nóvember, eftir nokkra törn.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home