Það er leikur að læra.
Ég er búin að vera að læra í marga tíma í dag. Vinnuhópurinn Frú Sigríður kemur saman klukkan ellefu í fyrramálið til að vinna verkefnavinnu í kúrsunum hjá Allyson og Salvöru. Okkur miðar vel áfram og þetta er allt saman mjög skemmtilegt og spennandi. Vorum á fundi á fimmtudaginn hjá Salvöru í KHÍ ásamt fleirum. Það var mjög gagnlegur fundur þar sem við kynntum verkefnin okkar ófromlega og ræddum um þau. Ég talaði inn á talblogg þ.e talaði inn á bloggið hjá Salvöru í gegnum GSM símann hennar. Einnig fræddist ég um Web Viewer hjá einum samnemanda mínum. Þetta er lítið tæki sem sett er á tölvuskjáinn þannig að hægt er að fylgjast með þeim sem sitja fyrir framan skjáinn í MSN spjalli, sniðugt fyrir þá sem eiga aðstandendur í útöndum, á spítala eða í öðru bæjarfélagi. Nú þarf ég að kynna mér þessa tækni betur; talblogg og Web-Viewer og reyndar margt fleira. Ef við getum sýnt fram á nýjungar í verkefnunum okkar er það mikill plús, skilst mér.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home