Maður er manns gaman.
Ég fór ekkert í bæinn í dag. Vinnufundinum var frestað vegna veðurs. Reyndar var ekkert að veðri seinni partinn, en ákvörðunin var tekin í morgun þegar á skall leiðindaveður og hálka. Reyndar var ég nú voða fegin, því ég þarf að fara til Reykjavíkur á morgun á fund hjá Salvöru í KHÍ. Ég slæ því tvær flugur í einu höggi og hitti stelpurnar eftir fundinn eða fyrir, hvernig sem það verður.
Nú fer að líða að árshátíð Sveitarfélagsins Ölfus en hún verður haldin nk. laugardag í Versölum. Við byrjuðum að æfa skemmtiatriðið okkar í dag sem var samið sl. föstudag af nokkrum vöskum kennslukonum. Ég er þögul sem gröfin um innihaldið. Voða leyndó! Allir vinnustaðir sveitarfélagsins koma með eitthvert heimatilbúið skemmtiatriði og skemmta sér og öðrum til yndis og ánægju. Ég er búin að ákveða í hverju ég fer, nákvæmlega fjórtán ára gömlu pylsi og jakka sem ég keypti í Tískuverslun Steinunnar á Akureyri þegar ég bjó þar. Ég ætla rétt að vona að enginn lesi þetta!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home