Sjá roðann í austri.
Þessi dagur var yndislega fallegur þrátt fyrir þó nokkuð frost sem fékk mig til að skjálfa eilítið þegar ég þurfti að fara út .....í bíl. (Ég er orðin svo ansi kulsækin í seinni tíð, þarf alltaf að vera íklædd ullarsokkum, föðurlandi og lopapeysu þegar ég sit við tölvuna). Svo ég víki nú aftur að veðrinu þá var birtan í dag einstaklega falleg. Sérstaklega þegar ég ók frá Selfossi og hingað niður eftir og horfði á roðann í austri. Tunglið var líka sérlega gullt og fallegt þ.e.a.s. helmingur þess sem var sjáanlegur, hinn var í fríi. Það var ekki dónalegt að stinga sér til sunds (ég reyndar hoppa alltaf) í morgunsárið og synda undir stjörnubjörtum himni, eins og hann var í morgun.
Þá fer ég eina ferðina enn suður, á morgun, að hitta vinnuhópinn minn, Frú Sigríði (hann heitir ekki í höfuðið á mér, heldur Siggu Óla frá Akranesi). Við hittumst á fimmtudag og laugardag í síðustu viku og svo núna á morgun. Við erum búnar að vera mjög duglegar, vinnum vel þegar við hittumst og komum vel undirbúnar til leiks. Ég er ansi ánægð með þennan hóp. Við vinnum að tveimur þróunarverkefnum, annað hjá Dr. Allyson og hitt hjá Frú Salvöru. Ég hlakka til að hitta eðalkvinnurnar seinnipartinn á morgun, Þórunni, Siggu og Jóhönnu.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home