Janúarlok
Nú er fyrsti mánuður þessa árs senn á enda. Hann hefur verið ótrúlega viðburðaríkur. Gleði hefur að mestu ráðið ríkjum en sorgin bar að garði 14. janúar s.l. þegar Þorsteinn Sveinsson kennari varð bráðkvaddur við kennslustörf langt fyrir aldur fram. Hann var með mér í Rafiðnaðarskólanum 2001-2002 afskaplega ljúfur og góður félagi. Við vorum ellefu kennarar sem voru í eins vetrar tölvukennaranám í Rafiðnaðarskólanum, kennarar með mismikla tölvureynslu og kunnáttu að baki. Á örskömmum tíma var kominn samhljómur í hópinn, þar sem samvinna og hjálpsemi var í hávegum höfð. Þetta var frábær hópur og við bundumst vináttuböndum sem vonandi varir til eilífðar nóns. Það er sárt að missa góðan félaga.
Það kom upp úr dúrnum þegar við Steini fórum að spjalla saman að við bjuggum í blokkum hlið við hlið í Álheimunum. Hann var fimm árum yngri en ég, þannig að hann mundi vel eftir bræðrum mínum. Það kom einnig í ljós að mamma hans var besta vinkona tengdamóður minnar og hétu þær báðar Helga Ingibjörg og frá Sauðárkróki. Blessuð sé minning Þorsteins og ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home