20.2.04

Mynd eftir Þorfinn Guðnason

Í gærkvöld var frumsýnd í Háskólabíói Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason. Myndin er mjög góð, frábær myndataka, hljóð og tónlist í myndinni er mögnuð. Ég var virkilega stolt af bróður mínum sem gat ekki þakkað fyrir móttökurnar vegna kvefs og hæsis sem hann hefur verið með síðan í sumar og fékk þegar hann lá úti blautur og hrakinn við myndatöku. Hann rétti Jón Proppé hljóðnemann, sem gerði handritið með honum, og hann þakkaði fyrir hönd þeirra beggja, mér fannst leiðinlegt að Toffi skyldi ekki geta talað en röddin lét ekki af stjórn.

Eftir sýningu var móttaka í hliðarsal Háskólabíós sem framleiðandi myndarinnar bauð upp á, Guðmundur Lýðsson. Landbúnaðarráðherra hélt þvílíka lofræðu um Þorfinn að manni datt helst í hug minningarorð. En auðvitað fylltist ég stolti og gleði yfir sigri Þorfinns. Þetta var frábært kvöld og gaman að hitta fólk sem var komið langt að. Tungnamenn og Ölfusingar voru nokkuð margir þarna, hálfgert ættarmót enda kemur höfuðból ættarinnar, Vatnsleysa, fyrir í flestum mynda hans. Já, römm er sú taug.

Til hamingju með Hestasögu, minn kæri.

19.2.04

Í gær birtust 105 eintök af sama pistlinum, en nú er hann horfinn og farinn frá mér (er þetta ekki upphaf af einhverju lagi?). Í þessum horfna pistli talaði ég um hljóðskúlptúrinn (öllu má nú nafn gefa) sem ég átti að gera í náminu í KHÍ fyrir sunnudag. Það fór allur laugardagurinn í þetta stúss, en þetta var nú bara skemmtilegt stúss, þegar maður áttaði sig á opgaven. Ég var með Dani í heimsókn þess vegna sletti ég.

Inge-Lise og Ole Hansen voru hérna í helgarferð, eyddu nokkrum dögum í sumarhúsi vina sinna í Borgarfirðinum og komu svo og sváfu eina nótt hjá okkur. Við erum búin að þekkja þessi öðlingshjón í rúm 20 ár, frá því að þau komu og dvöldu hjá okkur í viku á Akureyri í kennaraskiptum 1983. Við fórum svo og bjuggum eina viku hjá þeim árið eftir í Dronninglund. Þau eru sannkallaðir Íslandsvinir og elska að koma hingað til landsins. Ole er búinn að koma 14 sinnum. Við heimsækjum þau í sumar eins og svo oft áður.

Nú er ég búin að endurheimta heimasíðuna mína sem ég hef ekki haft aðganga að síðan að tölvan mín gafst upp fyrir jólin. Ég setti hljóðskúlptúrinn út á Netið áðan bara svona að gamni mínu.

7.2.04

Tónleikar í Versölum

Gershwin og annað góðgæti
Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran og Ólafur Kjartan Sigurðarson, baritón, ásamt undirleikaranum Kurt Kopercky, píanóleikara fluttu frábæra söngdagskrá í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, sunnudagskvöldið 1. febrúar. Á efnisskránni voru m.a. lög og textar eftir bræðurna Geroge og Ira Gershwin, þekkt lög eins og Summertime og It’t aint Necessarely So úr óperunni Porgy og Bess og minna þekkt lög sem söngvararnir fluttu á eftirminnilegum hátt.

Tónleikarnir hófust á aríum úr óperunni Brúðkaupi Figaros eftir Mozart sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni í lok febrúar. Hulda Björk og Ólafur Kjartan sungu einnig aríur úr Don Giovanni eftir Mozart og fyrri hluti tónleikanna lauk með fjórum íslenskum sönglögum. Það er óhætt að segja að listamennirnir hafi sungið sig inn í hug og hjörtu áheyrendanna sem fóru sælir og glaðir heim eftir ógleymanlega upplifun af söng, leik og húmor.
Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson eru bæði fastráðin við Íslensku óperuna. Austurríkismaðurinn Kurt Kopercky er píanóleikari og tónlistarstjóri Óperunnar.

Eftir tónleikana höfðu tónleikagestir á orði að svona ætti hvert einasta sunnudagskvöld að vera.

Menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss stóð fyrir tónleikunum og eru þeir upphafið að metnaðarfullri dagskrá nefndarinnar fyrir árið 2004.