Mynd eftir Þorfinn Guðnason
Í gærkvöld var frumsýnd í Háskólabíói Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason. Myndin er mjög góð, frábær myndataka, hljóð og tónlist í myndinni er mögnuð. Ég var virkilega stolt af bróður mínum sem gat ekki þakkað fyrir móttökurnar vegna kvefs og hæsis sem hann hefur verið með síðan í sumar og fékk þegar hann lá úti blautur og hrakinn við myndatöku. Hann rétti Jón Proppé hljóðnemann, sem gerði handritið með honum, og hann þakkaði fyrir hönd þeirra beggja, mér fannst leiðinlegt að Toffi skyldi ekki geta talað en röddin lét ekki af stjórn.
Eftir sýningu var móttaka í hliðarsal Háskólabíós sem framleiðandi myndarinnar bauð upp á, Guðmundur Lýðsson. Landbúnaðarráðherra hélt þvílíka lofræðu um Þorfinn að manni datt helst í hug minningarorð. En auðvitað fylltist ég stolti og gleði yfir sigri Þorfinns. Þetta var frábært kvöld og gaman að hitta fólk sem var komið langt að. Tungnamenn og Ölfusingar voru nokkuð margir þarna, hálfgert ættarmót enda kemur höfuðból ættarinnar, Vatnsleysa, fyrir í flestum mynda hans. Já, römm er sú taug.
Til hamingju með Hestasögu, minn kæri.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home