Tónleikar í Versölum
Gershwin og annað góðgæti
Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran og Ólafur Kjartan Sigurðarson, baritón, ásamt undirleikaranum Kurt Kopercky, píanóleikara fluttu frábæra söngdagskrá í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, sunnudagskvöldið 1. febrúar. Á efnisskránni voru m.a. lög og textar eftir bræðurna Geroge og Ira Gershwin, þekkt lög eins og Summertime og It’t aint Necessarely So úr óperunni Porgy og Bess og minna þekkt lög sem söngvararnir fluttu á eftirminnilegum hátt.
Tónleikarnir hófust á aríum úr óperunni Brúðkaupi Figaros eftir Mozart sem frumsýnd verður í Íslensku óperunni í lok febrúar. Hulda Björk og Ólafur Kjartan sungu einnig aríur úr Don Giovanni eftir Mozart og fyrri hluti tónleikanna lauk með fjórum íslenskum sönglögum. Það er óhætt að segja að listamennirnir hafi sungið sig inn í hug og hjörtu áheyrendanna sem fóru sælir og glaðir heim eftir ógleymanlega upplifun af söng, leik og húmor.
Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson eru bæði fastráðin við Íslensku óperuna. Austurríkismaðurinn Kurt Kopercky er píanóleikari og tónlistarstjóri Óperunnar.
Eftir tónleikana höfðu tónleikagestir á orði að svona ætti hvert einasta sunnudagskvöld að vera.
Menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss stóð fyrir tónleikunum og eru þeir upphafið að metnaðarfullri dagskrá nefndarinnar fyrir árið 2004.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home