Í dag fæddist þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn; drengur var í heiminn borinn á Landspítalanum á sjöunda tímanum í morgun. Mér finnst svo stutt síðan að við vorum bara 190 þúsund.
Ég hlustaði á skemmtilegan pistil í kvöld á Rúv sem Friðrik Páll Jónsson las en það var úr grein eftir ísraelskan rithöfund sem heitir Amasos, eða eitthvað í þá áttina, en hann var að velta því fyrir sér af hverju Sharon breytti um ham fyrir tveimur árum. En hingað til hafði hann verið maður aflsins sem hélt því fram að það sem ekki væri hægt að gera með afli væri hægt að gera með enn meira afli. Á einni nóttu varð leyndardómsfull breyting á Sharon sem fór allt í einu að tala sama tungumál og andstæðingar hans. Hann fékk sem sagt tvö ár til þess að vinda ofan að því sem hann hafði unnið að í 35 ár með afli.
Sat límd við skjáinn og horfði á heimildamynd um Cary Grant; mjög skemmtileg og þvílíkur sjarmör. Hann var uppáhaldsleikarinn minn, ásamt Rock Hudson, þegar ég safnaði leikaramyndum.
Nú er ég byrjuð að taka mig til fyrir Bett tölvusýninguna í London; við förum á miðvikudag. Ég fékk smá tilhlökkunar tilfinningu þegar ég las í bók um London fyrir túrhesta.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home