8.1.06

Daginn eftir þrettándann

Ég er búin að taka niður jólaskrautið og setja niður í kassa, fannst alveg vera kominn tími á það. Samt er hálftómlegt en þó léttir að vera laus við allt þetta dót og tilhlökkun til næsta árs þegar jólaskrautið verður tekið upp að nýju.
Það var fallegt veðrið í dag; alhvít jörð, blankalogn og sólskin. Annað en í gær; rigning og rok og engin hátíðarhöld. Ég fór í göngutúr og mér fannst þorpið með fallegra móti. Ég kom við hjá kollega til að hvíla lúin bein og þáði kaffi. Það var farið að skyggja þegar ég lagði af stað á ný.
Lét eftir prinsessunni að panta pítsu enda var ég ekki stuði til að fást eitthvað við mat því ég var í tiltekt og að ljúka við að pakka niður jólunum.
Horfði á tvær góðar myndir í sjónvarpinu í kvöld önnur þeirra var dönsk verðlaunamynd Arven eða Arfurinn. Danir eru góðir að búa til myndir.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home