Skruppum í borgina með prinsessuna og keyptum námsbækur fyrir nærri tuttugu þúsund krónur og enn vantar fimm bækur. Ég hitti fyrrum nemanda minn sem var í sömu erindagjörðum og við, sú stutta komin í MH.
Við duttum í að horfa á þátt á Stöð tvö Svona er lagið (annað skiptið sem ég sé hann) hjá Helgu og Óskari sem varð til þess að ég var að velta því fyrir mér í smá stund hvort ég ætti að gerast áskrifandi að Stöð tvö. Þær voru svo flottar Selma, Hansa, Ragnheiður Gröndal og Hervör Védís (held að hún heiti það). Selma kunni nánast alla texta og var alveg frábær og hinar dívurnar líka.
Komum við hjá mömmu og fengum rjúkandi pönnukökur. Á leiðinni heim ókum við fram á bíl sem hafði keyrt útaf rétt þegar við komum inn í Þrengslin, enda vegurinn mjög illa mokaður eða alls ekkert. Við stoppuðum ásamt öðrum bíl til að aðgæt að fólkinu og komust að því að ekkert amaði að því og aðstoð var á leiðinni. Mikil bílaumferð var á móti okkur, sennilega bílalest úr Herjólfi, þannig að það hefði ekki verið vanþörf á að hreinsa veginn.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home