Tímaritið Gestgjafinn græddi á mér núna. Ég þurfti sumsé að gerast áskrifandi til þess að næla mér í grein eftir Nönnu Rögnvaldsdóttur, á Gestgjafavefnum, sem heitir London fyrir sælkera - nokkrar Lundúnafreistingar. Nanna er í miklu uppáhaldi hjá mér núna, gaman að lesa greinar eftir hana og matreiðslubækurnar hennar eru dýrgripir. Enn sem komið er fæ ég þær lánaðar á bókasafninu. Það er verst hvað það er erfitt að skoða þær upp í rúmi, þær eru svo stórar og þungar, óþægilegt ef maður dottar og þær detta ofan á nefbroddinn.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home