Ég er farin að halda að Þorlákshöfn sé veðurparadís. Þegar borgarbúar bölva veðrinu í sand og öskur, eins og í morgun, þá er veðrið gott hér.
Mér finnst Hjálmar Hjálmarsson, ekki fréttamaður, rosalega skemmtilegur. Ég sá hann í Kastljósi sl. föstudag og þá var hann að tala um að það væri allt í lagi að dúndra niður álveri í Þorlákshöfn, en ekki í Eyjafjörð, af því að Þorlákshöfn væri svo ljótur staður. Allt í lagi með það, nema að ég er á móti álverum, en ég móðgaðist ferlega þegar kom myndbandsskeið af húsinu mínu! Og af því að innst inni er ég snoppuð, þá fór ég og sótti um lóð. Annars voru nokkrir sem tóku þessu þannig að þetta væri flottasta húsið í þorpinu þess vegna hefði það verið sýnt!
Það fer nú svolítið fyrir brjóstið (stundum bæði) þegar fólk spyr mig að því, hvort ég búi ennþá suður með sjó.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home