Ég var svo ánægð þegar ég sá að ég hefði fengið póst frá hinum bandaríska Eric Whitacre, loksins væri hann að svara bréfinu sem ég sendi til hans í janúar fyrir hönd KS. Ég get náttúrlega verið upp með mér að ég skuli tilheyra vinahópi hans því hann byrjar bréfið á Dear Friends, en hann er að láta vita að feikna góðum hljómdiski sem er að koma út með verkum hans um miðjan febrúar. Það er enskur kór Polyphony sem syngur á disknum undir stjórn Stephen Layton, sem Eric hrósar í hástert. Það vill svo til að ég skrifaði Layton líka til að spyrja hann um hvernig ég gæti komist í samband við Eric. Hann hefur enn ekki svarað mér. Ætli að þeir haldi að ég sé að grínast?
Hægt er að nálgast diskinn á Amazon.com, Eric biður um í bréfinu að við látum það berast til vina og vandamanna.
Annars er Kammerkór Suðurlands að undirbúa útgáfu hljómdisks með lögum eftir Guðmund Gottskálksson. Ég var einmitt að lesa yfir handrit að öllum textum og upplýsingum sem eiga að vera á hulstrinu.
Og annar diskur kom út með kórnum um jólin en fer ekki í kynningu fyrr en um páskana. Þetta er diskur með verkum eftir Gunnar Reynir Sveinsson og heitir Til Maríu, Smekkleysa gefur hann út.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home