Krónan gefur okkur séns
Í gærkvöldi fór ég á fund í Ráðhúskaffi sem Krónan boðaði til og Ólafur Áki bæjarstjóri um framtíð Krónunnar. Mannfjöldinn var svo mikill að það þurfti að færa fundinn yfir í Versali (stærri salinn) en annars átti þetta vera kósý lítill fundur í Ráðhúskaffi. Þarna voru mætti tveir sætir strákar frá Kaupási og svei mér þá ég þekkti annan þeirra, Árna Freysteinsson, hann dansaði í einhverjum söngleikjum hjá Leikfélag Akureyrar hér í den og kom hann askvaðandi og heilsaði mér með þéttu handtaki. Sigurður nokkur hafði orð fyrir þeim félögum og kvartaði yfir því að bæjarbúar væru ekki nógu duglegir að versla í Krónunni og þeir sæju því sína sæng út breidda, þeir yrði að loka Krónunni og setja á laggirnar Kjarvalsverslun sem væri með dýrarar vöruverð en Krónan. Sigurður viðurkenndi þó að það mætti kannski skrifa eitthvað á þá að salan hefði dregist saman; þeir hefði ekki staðið sig nógu vel með vöruúrvalið og að þjónusta kúnnann og viðstaddir tóku undir það með lófataki. Þetta var hörkufundur og þeir lofuðu að halda áfram að starfrækja Krónuna í tvo mánuði ef við yrðum dugleg að versla!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home