16.2.06

Með Laxness upp í rúmi

Við mæðgur erum veikar og liggjum hér saman og lesum í Laxness. Prinsessan les Íslandsklukkuna og ég les Heimsljós. Ég hef gaman af lestrinum og spyr dóttluna mína hvort henni finnist gaman að lesa Íslandsklukkuna. Hún hristir höfuðið en þó hef ég heyrt hana gefa frá sér einhvers konar hljóð, við lesturinn, sem flokkast getur undir hlátur.

Ég hef ekki lesið margar bækur eftir Laxness þó ég eigi ritsafnið hans. Ég hefði sennilega ekki tekið fram Heimsljós nema af því að Þráinn Bertelsson nefnir hana í bókinni sinni Einhvers konar ég sem ég las um daginn. Einhverja samsvörun fann Þráinn með sér og Ó. Kárasyni Ljósvíkingi og hann segir að Halldór Kiljan Laxness hafi opinberast sér í allri sinni dýrð við lestur Heimsljóss. Þetta vakti áhuga minn.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home