Menning í Ölfusi og Hemmi fimmtugur
Formaður menningarnefndar Jóhanna M. Hjartardóttir og menningarfulltrúinn Barbara Guðnadóttir kynntu ársskýrslu menningarmála fyrir árið 2005 á Bæjarbókasafni Ölfuss í gær og starfið sem framundan er hjá menningarnefnd. Góður rómur var gerður að skýrslunni og menningarnefnd og menningarfulltrúa þökkuð góð störf. Það er ótrúlegt hvað mikið er um að vera í þessu litla bæjarfélagi.
Menningarnefndin (Jóhanna Hjartardóttir, formaður, Elín Björg Jónsdóttir, varaformaður, Sigríður Guðnadóttir, Linda Björg Sigurðardóttir og Jón Trausti Ársælsson) var sett á laggirnar eftir síðustu sveitastjórnarkosningar og er því búin að starfa u.þ.b. fjögur ár. Þetta hefur verið öflug menningarnefnd og unnið vel saman. Á tímabili sá hún um allar menningarlegar uppákomur þegar forstöðumaður bókasafnsins hætti og ekki var búið að ráða menningarfulltrúa. Það var ótrúlega mikið um að vera þá líka. Það var mikill léttir þegar menningarfulltrúinn kom til starfa fyrir einu og hálfu ári og tók við framkvæmdarstjórninni. Hún hefur staðið sig mjög vel í starfinu.
Hemmi fimmtugur
Hermann G. Jónsson átti afmæli í gær 23. febrúar og varð fimmtugur, ótrúlegt en satt. Við Kammersystur, Jóhanna og ég, fórum og heimsóttum hann í gær til að óska honum til hamingju með þennan merka áfanga. Það var vel tekið á móti okkur og við áttu þarna saman skemmtilega stund með fjölskyldunni!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home