17.2.06

Á morgun (í dag) á minn afmæli. Ég sit hér og bíð eftir að kakan bakist sem hann ætlar með í vinnuna. Ég bauðst til að búa líka til heitt rúllubrauð en það var náttúrlega ekki til mozzarella-kúlu-ostur í poka hér í Krónunni, þannig að nú verð ég að nota hugmyndaflugið.

Hann verður vakin á morgun með afmælissöngnum, kertaljósi, heitu súkkulaði með rjóma og ristuðu brauði (gat ekki bakað bollur af því ég er veik...er samt að skríða saman) og rifsberjahlaupi búið til úr rifsberjunum sem hann tíndi í haust úr garðinum!

2 Viltu tjá þig?

At 21 febrúar, 2006 08:37, Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að lesa þessa síðu Sigga mín. Hvernig er með frystikistuna og bollurnar , áttu ekkert í kistunni???? Ég vil svo benda á það vegna skrifa þinna um Hjálmar Hjálmars að hann hefur að sjálfsögðu valið fallegasta húsið í Þorlákshöfn til að sýna þar sem við dalvíkingar höfum gott auga fyrir fögrum hlutum

 
At 21 febrúar, 2006 12:09, Anonymous Nafnlaus said...

Ég á svo sem eitthvað í kistunni en ekki bollur, er ekki nógu dugleg að baka (ég hef ekki erft bakstursgenin hennar mömmnu). Ég sé að ég hef ekki hamstrað nógu mikinn mat í frystikistuna eins og manni er ráðlagt ef fuglaflensa ber að dyrum.

Já, fólk hefur verið að reyna telja mér trú um að Hjálmar hafi valið fallegasta húsið...

 

Skrifa ummæli

<< Home