5.2.06

Þorrablótið var mjög skemmtilegt. Góður matur, vellukkuð skemmtiatriði og hljómsveitin fjörug, enda úr Vestmannaeyjum og heitir Dans á rósum. Veislustjórinn Gísli Einarsson var góður og fyndinn. Félagar úr nýstofnuðu Leikfélagi Ölfus eða Öl-fuss, eins og Gísli sagði alltaf, kom skemmtilega á óvart með hrífandi söng og dansatriðum. Ég held að allir hafi skemmt sér vel. Litla prinsessan mín fékk að fara af því hún er á 18 ári og henni fannst gaman. Hún bauð pabba sínum upp í dans og hann var svakalega montinn og fannst hún dansa vel!
Eina sem ég keypti mér fyrir þorrablótið voru rándýrir eyrnalokkar úr Flex og bróderað selskapsveski sem kostaði aðeins 1200 kr.á útsölu í búð á Laugaveginum sem selur notað og nýtt.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home